Fasteignaleitin
Skráð 31. ágúst 2026

Kirkjuvegur 57

EinbýlishúsSuðurland/Vestmannaeyjar-900
210.7 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
79.800.000 kr.
Fermetraverð
378.738 kr./m2
Brunabótamat
92.400.000 kr.
Byggt 1925
Pallur
Heitur pottur
Margir Inng.
Fasteignanúmer
21844192
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Margir inngangar

Kirkjuvegur 57, Staðarhóll, Vestmannaeyjum

Um er að ræða einbýlishús samtals 210.7 fm. að stærð. Samkvæmt fasteignayfirliti er lóðin 426,7 fm. Húsið er skráð af timbri en jarðhæðin og bílskúr er steypt, skráð byggingarár íbúðarhluta er 1925 en bílskúrs árið 2000.  Eignin skiptist svo:
 
Jarðhæð skv. fasteignaskrá 57,2 fm.
Rúmgott hol með flísum. 
Tvö góð herbergi (1-2) með nýlegu parketi. Björt með tveimur gluggum hvort. 
Salerni með WC og sturtuaðstöðu.
Þvottahús með steyptu gólfi
Gengið inn í rúmgóðan bílskúr (skráður 45,4 fm, byggður árið 2000) með rafmagni, hita og vatni. Skipt verður um bílskúrshurð í ágústmánuði 2026. Þar er inntakið fyrir heitan pott sem er á verönd.
Stigi á milli hæða, mögulegt að gera sér íbúð á jarðhæð

Hæðin er skv. fasteignamati 65,3 fm. að stærð.
Gengið upp tröppur frá Kirkjuvegi. Útidyrahurð endurnýjuð. Lítið anddyri með viðargólfi.
Komið inn í stórt L laga rými, stofa og borðstofa með fallegu viðargólfi. Gegnheill viður skv. upplýsingum eigenda sem hægt er að pússa upp.
Eldhús innaf,eldri innrétting, bakinngangur þar sem m.a. er frystiskápur.
Baðherbergi sem er endurnýjað c.a. árið 2014, hiti í gólfi, sturtuklefi og upphent WC.

Rishæð (skv. fasteignaskrá 42,8 fm, en gólfflötur aðeins meiri).
Nokkuð brattur stigi milli hæða.
Stórt rými sem nýtt er sem   hjónaherbergi (3)  en hægt að skipta upp. Panill í lofti. Góðir fataskápar.
Svefnherbergi (4) er í risi. Skápar meðfram allri vegghliðinni, góðar geymslur.
 
Stór steypt verönd er ofan á bílskúr innangeng frá hæð. Þar er heitur pottur sem fylgir. Garður til norðurs og austur. Vel girtur t.d. fyrir hunda til norðurs.
Fyrir framan bílskúr er stórt hellulagt svæði sem nýtist sem bílastæði eða geymslusvæði.

Húsið er klætt að utan með alusink sem og þak. Búið að endurnýja kjöl en þak og klæðning skv. eigendum í góðu lagi.  Skipt um ofna ca. árið 2000 um sama leiti og bílskúr var byggður. Rafmagn og lagnir líklega frá sama tíma. Búið að yfirfara glugga og laga það sem þurfti. Skipt um glugga í bakinngangi.

Mögulegt væri að gera séríbúð-gestaeiningu á jarðhæð.

Skipti möguleg á minni eign í Eyjum.


Nánari upplýsingar veitir Helgi Bragason, lögmaður og lögg. fasteignasali, 8931068, hb@eyjar.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasala Vestmannaeyja
http://eign.net

Myndir (76)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tjarnarstígur 9
Bílskúr
Opið hús:18. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Tjarnarstígur 9
Tjarnarstígur 9
825 Stokkseyri
229,8 m2
Einbýlishús
412
478 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Túngata 42
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Túngata 42
Túngata 42
101 Reykjavík
222,9 m2
Einbýlishús
936
807 þ.kr./m2
179.900.000 kr.
Skoða eignina Norðurvangur 38
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Opið hús:15. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Norðurvangur 38
Norðurvangur 38
220 Hafnarfjörður
201,7 m2
Einbýlishús
513
768 þ.kr./m2
154.900.000 kr.
Skoða eignina Dynhóll 9
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Dynhóll 9
Dynhóll 9
245 Sandgerði
197,5 m2
Einbýlishús
524
481 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin