Fasteignaleitin
Skráð 13. júlí 2026

Vatnsendahlíð 218

SumarhúsVesturland/Borgarnes-311
102 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
832.353 kr./m2
Brunabótamat
55.500.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
23337106
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Sérinngangur

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:

Virkilega fallegt og eigulegt sumarhús með miklu útsýni, bátaskýli við vatn og kamínu ásamt stórum heitum potti við Skorradalsvatn í Borgarfirði.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is

Eignin samanstendur af forstofu, þremur svefnherbergjum, baðherbergi (með þvottavél og þurrkara), alrými með góðri lofthæð, vel búnu eldhúsi, rúmgóðri stofu, góðri verönd með stórum heitum potti, útisturtu og fallegu útsýni móti suðri og Skarðsheiðinni.

Húsið er kynnt með nýrri varmadælu (loft í loft) í alrými og eru rafmagnsofnar í svefnherbergjum, hitakútur fyrir heitt neysluvatn.

Stærð eignar er 82 fm ásamt 106 fm verönd skv. fasteignayfirliti eignarinnar.

Nýtt bátaskýli, um 20 fm, er staðsett niður við Skorradalsvatn (aðgengi um svæði 2).

Í bátaskýlinu er jetski á kerru, þrír kajakar og blautbúningar ásamt björgunarvestum og ýmsum leiktækjum fyrir vatnasport, fylgir allt með í kaupunum.

Eignin stendur uppi í brekkunni ofan við veg og er því aðgengi að vetrarlagi mjög gott.

Húsið er á 5.672 fm leigulóð í landi Vatnsendahlíðar og mun kaupandi fá nýjan lóðarleigusamning til 20 ára samhliða kaupum.

Húsið afhendist eins og það stendur, með öllu innbúi, klárt til notkunar mínus persónulegir hlutir.

Sumarhúsið er um 75 km frá höfðuborgarsvæðinu, allt á malbiki og tekur um 60 min að aka uppeftir.

Eignin getur verið afhent 15 dögum eftir kaupsamning eða skv. nánara samkomulagi.

Nánari lýsing:
Forstofa - 3 stórir fataskápar með miklu geymsluplássi, parket á gólfi.
Svefnherbergi - er þrjú alls, hjónaherbergi er með tvöföldum fataskáp, kommóður í hinum tveimur, innbyggð koja er í einu herberginu, parket á gólfum.
Baðherbergi - flísalagt, innrétting með vaski, upphengt salerni, þröskuldarlaus sturta, þvottavél og þurrkari.
Alrými - rúm og opin stofa/borðstofa og eldhús, með aukinni lofthæð.
Eldhús - Innrétting með efri og neðri hirslum, helluborð, nýlegur combi ofn, einfaldur ísskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél, parket á gólfi.
Borðstofa/stofa - rúmgóð með kamínu og útgent út á veröndina, parket á gólfum.
Verönd - rúmgóð á öllum hliðum hússins, mikið útsýni móti suðri, stór 8 manna heitur rafmagnspottur, útisturta, grill og útihúsgögn fylgja. Fyrir ofan húsið er barnakofi, eldiviðargeymsla ásamt rúmgóðum palli.
Lóð - gróin og með góðu bílastæði fyrir 3 bíla.

Virkilega eiguleg eign sem vert er að skoða. Um 20 km er í alla þjónustu í Borgarnesi, 24 km í Hamarsgolfvöll, 32 km í Kraumu náttúrulaugar og 59 km upp í Húsafell.

Rekstrarkostnaður 2025, á ársgrundvelli:
Fasteignagjöld = 218.927 kr.
Lóðarleiga = 264.320 kr.
Brunatrygging = 79.130 kr.
Sumarhúsafélag og kalda vatnið = 23.765 kr.
Rafmagn = 400.000 kr (fer eftir notkun). (ath. var meira notaður 2025 en 2024 og bátaskýli bætist við í ágúst 2025 - mér sýnist það leggjast á ca. 8.000 kr. á mánuði mv. að kynda það - ég geri það en ekki allir)

Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lifum Heima fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignalausnir ehf
670kopasker@gmail.com

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vatnsendahlíð 218
Vatnsendahlíð 218
311 Borgarnes
102 m2
Sumarhús
413
832 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Dvergholt 15
Skoða eignina Dvergholt 15
Dvergholt 15
311 Borgarnes
85.3 m2
Sumarhús
413
737 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðartröð 1 Dalvík
Hlíðartröð 1 Dalvík
621 Dalvík
109 m2
Sumarhús
312
384 þ.kr./m2
41.900.000 kr.
Skoða eignina Mosavegur 7
Skoða eignina Mosavegur 7
Mosavegur 7
806 Selfoss
115 m2
Sumarhús
514
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin