**** Þessi stórglæsilega penthouse íbúð er til afhendingar við kaupsamning****
Guðrún Þórhalla og Guðmundur Þór Júlíusson löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna: Hringhamar 9-11 í Hamranesinu, Hafnarfirði. Stórglæsileg penthouse íbúð í fallegu og sérlega vönduðu Svansvottuðu fjölbýlishúsi sem byggt er af traustum verkataka Mótx. ÍBÚÐ 601 ER STÓRGLÆSILEG PENTHOUSE ÍBÚÐ MEÐ ÚTSÝNI SEM VERT ER AÐ SKOÐA - glæsilegar 69,9 fm þaksvalir. EIGNIN ER VÖNDUÐ OG FALLEG.
Bókaðu skoðun hjá Guðrúnu í síma 820-0490 eða hjá Gumma í síma 858-7410 HÉR GETUR ÞÚ SKOÐAÐ EIGNINA Í 3D.Íbúðin afhendis fullbúnin með gólfefnum, ísskáp og innbyggðri uppþvottavél. Eignin er útbúin með sérstöku loftræstiskerfi. Kerfið hefur loftskipti í íbúðinni með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu, og soga lofti út úr baði, þvottahúsi og eldhúsi.Eignirnar eru til afhendingar við kaupsamning. Hringhamar.is - Heimasíða verkefnisins.
Íbúð 601: 133,9 fm 3 herbergja íbúð á efstu hæð ásamt tveimur stæðum í bílageymslu. Íbúðin er 126 fm ásamt 7,6 fm geymslu. Tvö baðherbergi og 69.9 fm þaksvalir
Bókið skoðun hjá Guðrúnu í síma 820-0490 eða með tölvupósti á netfangið gudrun@remax.is eða á Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is Frekari upplýsingar um eignirnar:Gólf íbúðar er olíuborin burstuð eik, nema á baðherbergi og í þvottahúsi en þar eru flísar á gólfum. Einnig eru flísar á veggjum baðherbergja, flísar eru frá Parka. Fataskápar í herbergjum og forstofu eru af vandaðri gerð frá Axis. Borðplötur eru í eldhúsi, baði og þvottahúsi þar sem við á og eru frá Axis.
Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis ásamt vaski og Grohe blöndunartækjum frá Byko. Helluborð og blástursofn eru af gerðinni AEG frá Ormsson (sjá nánar á www.ormsson.is) Gufugleypir í eldhúsi er einnig frá Ormsson.
Baðherbergi: Baðinnrétting kemur frá Axis. Hreinlætistæki og handklæðaofn eru frá Byko. Salernið er upphengt og innbyggt. Hitastýrð blöndunartæki verða við sturtu. Gólf eru flísalögð og veggir að hluta upp í loft
Loftræsting: Sérstakt loftræstikerfi er fyrir hverja íbúð. Kerfið hefur loftskipti í íbúðinni með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu, og soga lofti út úr baði, þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu og nýtir við bestu aðstæður um 80% af varmanum. Kerfið er með loftsíum og er allt loft sem kemur inn síað. Ekki á að vera þörf á að opna glugga í íbúðinni til loftunnar.
Frágangur sameignar: Anddyri/stigahús er lokað og er það flísalagt á aðkomuhæð með uppsettum póstkössum. Stigar og stigapallar eru teppalagðir, handrið eru á stigagöngum. Allar útidyrahurðir frágengnar og er rafmagnsopnun á aðalinngöngum. Sameign er upphituð með ofnakerfi. Raflagnir í sameign eru fullbúnar með ljósum, sbr. teikningar. Loftræstilagnir eru lagðar skv. teikningu.
Sameign: Í bílgeymslu er lagt grunnkerfi fyrir bílhleðslu. Eigendur stæða í bílgeymslu
geta sett upp eigin hleðslustöð og tengt inn á grunnkerfi bílgeymslu
Skólar og leikskólar eru í nágrenni og eru öruggar göngu- og hjólaleiðir að þeim. Einnig er fyrirhugað að nýr leikskóli rísi í næsta nágrenni.
Hverfið er í nálægð við náttúru og er staðsetningin einstök með tilliti til útivistar. Í næsta nágrenni er Ástjörn, Hvaleyrarvatn og ein vinsælasta gönguleiðin í Hafnarfirði, upp á Helgafell.
MótX ehf. er byggingaraðili verkefnisins og eigandi. MótX ehf. er alhliða byggingafélag og var stofnað árið 2005 og hefur starfað óslitið síðan. MótX ehf. hefur getið sér gott orð sem framleiðandi íbúðar- og iðnaðarhúsnæðis á þessum tíma. Félagið hefur fengið viðurkenningar, bæði fyrir hönnun bygginga og frágang lóða á nýbyggingasvæði.Allar nánari upplýsingar veita:Guðrún Þórhalla Helgadóttir löggiltur fasteignasali/viðskiptafræðingur í síma
820-0490 eða á netfangið gudrun@remax.is
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma
858-7410 eða á netfangið gj@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.