Fasteignaleitin
Skráð 26. nóv. 2026

Þrastanes 14

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
345.4 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
295.000.000 kr.
Fermetraverð
854.082 kr./m2
Fasteignamat
235.050.000 kr.
Brunabótamat
163.750.000 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1981
Garður
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Baðkar
Sturtuklefi
Hleðslustöð
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2072594
Landnúmer
119704
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Árið 2024 var ný heitavatns heimtaug lögð frá götu og inn að lagnagrind.
Raflagnir
Upprunalegar, en þó eitthvað endurnýjað að hluta,
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Gluggar málaðir 2019 að innan og að utan árið 2020
Þak
Koparþak og koparrennur, lítur vel út að sjá.
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Já, vestur og norðursvalir. Útsýni, morgunsól og eftirmiðdagssól.
Upphitun
Hefðbundið ofnakerfi
Inngangur
Tveir inngangar
Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu: 

Glæsilegt og vel skipulagt 345,0 fm. einbýlishús við Þrastanes 14, 210 Garðabæ, þar af er innbyggður tvöfaldur bílskúr og aukaíbúð með sér inngangi. 

Húsið er frá árinu 1981, arkitekt Þorvaldur Kristmundsson
Halldóra Vífilsdóttir arkitekt teiknaði breytingar á húsi að innan árið 2008 þegar húsið var en innréttað að nýju.
Umbætur lóðar teiknaðar af Ólafi Melsteð landslagsarkitekt.

Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. Þak, rennur og niðurföll hússins er nánast viðhaldsfrí með eir/kopar þaki.

Vel staðsett hús á 1301,0 fm. eignarlóð á Arnarnesi með fallegum einföldum garði og flotta útiaðstöðu með tveimur viðar veröndum til austurs og suðurs og svölum til vesturs og norðurs. Húsið nýtur því sólar frá morgni til kvölds að sumarlagi með fallegu útsýni til vesturs yfir Kópavog og alla leið til Snæfellsjökuls. Nýlegur heitur pottur er á austur verönd og nýleg hleðslustöð fyrir rafbíl. Innbyggður bílskúr er tvöfaldur og bílastæði við húsið er mjög stórt, hellulagt og með snjóbræðslu. Nýlegt 15,0 fm. garðhús á lóðinnu fylgir með.

Smelltu á hlekkinn til að skoða húsið í þrívídd

Smelltu á hlekkinn til að skoða auka íbúðina í þrívídd

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 / gulli@remax.is

Nánari lýsing:

Komið er inn í mjög rúmgóða forstofu á neðri hæð með flísum á gólfi, þar á hæðinni er mjög stórt og rúmgott svefnherbergi með gegnheilt parket á gólfi. Gott baðherbergi er þar við hlið með flísum á gólfi og á hluta af veggjum. Sturta með glerþili, handklæðaofn, upphengt salerni, baðskápur og baðinnrétting með handlaug og skápum þar undir. Stór geymsla með málað gólf og sér þvottahús þar við hlið með flísum á gólfi og L-laga innréttingu með tengi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, skolvask og mjög gott skúffu- skápa- og vinnupláss. Á forstofu ganginum er fataskápur með rennihurðum, þar á bak við skápinn væri möguleiki að opna inn í aukaíbúðina fyrir þá sem það vilja. Úr forstofu er líka innangengt á vinstri hönd í um 51,8 fm. fm tvöfaldan bílskúr með rafdrifnar bílskúrshurðir, og heitt og kalt vatn ásamt skolvaski. Á neðri hæð er einnig ca. 45 fm íbúð með sérinngangi, eldhúsinnréttingu, baðherbergi og geymslu. Hægt er að opna á milli íbúðar og forstofu, en íbúðin er með sömu gólf flísum og forstofan. 

Steyptur fallegur bogadreginn stigi með næturlýsingu í og parket þrepum leiðir upp á efri hæð frá forstofunni.

Þegar upp er komið, er þar hol, borðstofa, stofa, stórt eldhús og sér sjónvarpsherbergi. Hjónaherbergi með fataherbergi, annað svefnherbergi og baðherbergi. Gólfefni á efri hæð er sama parket og í herbergi á neðri hæð og í stiganum. Efri hæðin er mjög björt og flott með víðsýnt útsýni og útgengi út á svalir sem eru L-laga og vísa til vesturs og norðurs með fallegt útsýni út að Kópavogi og að Snæfellsjökli á góðum degi. Stofan er björt og falleg með hátt til lofts. Eldhús er stórt með fallegri tímalausri hvítri innréttingu og stórri eyju. Í eyju er innfelld flott eldunargræja með gas helluborði og tveimur ofnum. Borðplata er hvít Corian borðplata. Tvöfaldur ísskápur og innbyggð uppþvottavél er ný. Í eldhúsi er pláss fyrir annað borðstofuborð og þar er líka huggulegur set krókur. Frá hinni borðstofunni er útgengt út á verönd sem snýr í austur, þar er heitur pottur og skjólveggir. Sjónvarpsstofan er sér við hliðinna á borðstofunni, rúmgott og bjart rými með rennihurð og gólfsíða glugga sem vísa út á suður verönd með skjólveggjum. Svefnherbergisgangur, hann er hægt að loka hann af með hurð, þar er rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi og útgengi út á svalir sem vísa til austurs í morgunsólina ( hjónaherbergið var áður þrjú barnaherbergi ). Á svefnherbergisganginum er annað rúmgott svefnherbergi og þar við hlið er baðherbergi með gólfhita, flísalagt gólf og flísalagð veggir. Sturta með innbyggðum blöndunartækum og sér baðkar ásamt upphengdu salerni og handklæðaofni. Baðinnrétting er hvít með Corian borðplötu og skúffum þar undir, stór speglaskápur þar fyrir ofan með lýsingu í.  Úr holi er innfelldur stigi upp á kalt geymsluloft sem er með ca. 25,0 fm viðargólfi og lofthæð er frá 1,2 til 2,4m. ( Geymsluloft er ekki inn í skráðum fm hússins ) 

 Gólfefni og innréttingar eru smekkleg og samræmd fyrir öll rými. Lýsing í húsinu var endurnýjuð með fallegum led dimmanlegum ljósum frá Lumex. Þá er búið að endurnýja og bæta við útilýsingu við og kringum húsið. Vel hefur verið hugað að húsinu, bæði að innan sem að utan. 

Stúdíó - íbúð: Á neðri hæð er rúmlega 40,0 fm. studíó íbúð með sérinngangi, eldhúsinnréttingu, baðherbergi og geymslu. Hægt er að opna á milli íbúðar og forstofu, en íbúðin er með sömu golfflísum og forstofan. Gengið er inn í aukaíbúð á norðurhlið hússins. (Þar er eigandi með fótaagerðarstofu, og heimild fyrir slíka nýtingu á húsnæðinu) 

 Viðhald/endurbætur 
- 2008: Húsið innréttað að nýju, innréttingar og gólfefni samræmd ásamt því að sett var eir/kopar á þak, rennur og niðurföll hússins.
· 2019: Hús málað að innan og gluggar.
· 2020: Húsið málað að utan og gluggar. Innilýsing endurnýjuð með dimmanlegum ljósum.
· 2021-2022: Lóð tekin í gegn og einfölduð, bílaplan stækkað, tekur 5-10 bíla. Garðhús byggt og pallar lagfærðir og endursmíðaðir að hluta. Gróðursett nokkur tré.
· 2023: Útilýsing sett upp hringinn kringum húsið, stýrð með klukku
· 2024: Köld geymsla innréttuð upp á háalofti, viðarklætt gólf og rými afmarkað, ca. 25 fm með lofthæð frá 1,3-2,4m. Ný heitavatns heimtaug lögð frá götu og inn að lagnagrind.
· 2025: Heitavatnspottur endurnýjaður (heitirpottar.is) og sett upp ný grind með segullokum.
· 2026: Hleðslustöð fyrir rafbíl sett upp

Hér er um að ræða frábært tækifæri til að eignast fullbúið, vandað og tímalaust einbýli á rólegum og einum besta og eftirsóttasta stað á höfuðborgarsvæðinu.

Nánari upplýsingar veitir: Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 661- 6056 / gulli@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.


 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
14/09/2019118.300.000 kr.137.300.000 kr.345.4 m2397.510 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (75)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hólmaþing 5A
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Hólmaþing 5A
Hólmaþing 5A
203 Kópavogur
230,5 m2
Einbýlishús
514
2039 þ.kr./m2
470.000.000 kr.
Skoða eignina Álfkonuhvarf 15
Heitur pottur
Skoða eignina Álfkonuhvarf 15
Álfkonuhvarf 15
203 Kópavogur
207,9 m2
Raðhús
625
832 þ.kr./m2
172.900.000 kr.
Skoða eignina Skerpluholt 5
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Skerpluholt 5
Skerpluholt 5
210 Garðabær
240 m2
Einbýlishús
523
915 þ.kr./m2
219.500.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 14C
Skoða eignina Hafnarbraut 14C
Hafnarbraut 14C
200 Kópavogur
92,5 m2
Fjölbýlishús
312
950 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin