Fasteignaleitin
Skráð 13. mars 2026

Aðalbraut 2

EinbýlishúsVestfirðir/Drangsnes-520
167.7 m2
4 Herb.
1 Baðherb.
Verð
18.800.000 kr.
Fermetraverð
112.105 kr./m2
Fasteignamat
19.300.000 kr.
Brunabótamat
49.690.000 kr.
Mynd af Hrannar Jónsson
Hrannar Jónsson
Löggiltur fasteignasali
Geymsla 48.2m2
Garður
Bílskúr
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2128438
Landnúmer
141834
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Skipt um að hluta
Raflagnir
Skipt um að hluta
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Skipt um að hluta
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Gallar
Milliveggur í skúr á bakvið er greinilega klæddur með aspest, en skv. þeim upplýsingum sem fasteignasali hefur fengið á ekki að vera aspest í aðalhúsinu sjálfu. Húsið hefur verið í endurnýjunarferli, er mislangt komið og þarf kaupandi að skoða húsið út frá þeirri staðreynd og með slíkt í huga, skv. skoðunar- og aðgæsluskyldu í fasteignakaupalögum nr.40/2002. Núverandi seljandi er erfingi og hefur ekki búið sjálfur í húsinu undanfarin ár og þekkir húsið því takmarkað til upplýsingagjafar.
Domusnova fasteignasala Borgarnesi er með til sölu 167,7 fm einbýlishús á tveimur hæðum, með bílskúr, með stórfenglegu útsýni á Drangsnesi við Steingrímsfjörð.

Flott tækifæri fyrir réttan aðila.

Aðalbraut 2, Kaldrananeshreppi, húsið er nefnt Hamravík, er steypt að hluta og timburgrind að hluta. Er um að ræða einbýlishús á tveimur hæðum, elsti hluti hússins er 75,5 fm. frá árinu 1925, 44,0 fm. bílskúr byggður við árið 1960 og 48,2, fm. geymsla árið 1970, samtals er eignin því með birta stærð upp á 167,7 fm.

Aðalhæð skiptist í forstofu og opið rými, þaðan sem innangengt er í bílskúr og stigi er upp á efri hæð hússins. Rúmgott baðherbergi er til staðar og þvottahús. Efri hæðin skiptist í tvö rými, stofu og svefnherbergi. Loft og veggir klæddir með panil á efri hæðinni, parket á gólfi. Stigi milli hæða er vinnustigi úr timbri.


** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@domusnova.is


Fyrsta hæð:
Forstofa og opið rými, flísar á gólfi.
Eldhús er með U-laga innréttingu með efri skápum og flísum á gólfi.
Baðherbergi og þvottahús er óklárað rými, rúmgott baðherbergi og  þvottahúsi þaðan sem er útgengt út í garð.

Bílskúr og geymslur:
Gengið er inn í bílskúr að framanverðu, gönguhurð og bílskúrshurð. Hurð er á milli íbúðarrýmis og bílskúrs.
Innst inn í bílskúr er gengið inn í geymslu sem er sambyggð húsinu og þaðan inn í aðra geymslu þaðan sem er útgengt. Steypt gólf eru á öllum þessum rýmum.

* Rafmagn er í endurnýjunarferli, sumt búið en mikið óklárt.
* Þak allt verið endurnýjað í heild sinni og bætt enn frekar við einangrun.
* Skipt um flesta glugga.
* Klæðning að utan hefur verið endurnýjuð að hluta.
* Byrjað var að skipta um vatnslagnir, er því ekki lokið.

Helsta sem liggur fyrir:
Húsið þarfnast endurnýjunar og töluverða framkvæmda. Ekki hefur verið búið í húsinu síðastliðið ár né haldið áfram með þær framkvæmdir sem byrjað var á. Bent er á að margt sem búið er að gera hefur fyrri eigandi gert sjálfur og skal kaupandi skoða húsið með það í huga út frá skoðunarskyldu kaupenda skv. fasteignakaupalögum.

Framkvæmdir er mislangt á veg komnar og leggja þarf töluverða vinnu í standsetja húsið. Á staðnum er eitthvað til af efni sem keypt hafði verið fyrir þær framkvæmdir sem stóðu yfir og fylgir það með sem sést á myndum og sýnt við skoðun. Einnig eru þau verkfæri sem sjást á myndum og við skoðun hluti af kaupum á húsinu. Því selst húsið eins og það stendur og er kynnt.

Kaupanda er bent sérstaklega á að seljandi hefur ekki búið í húsinu né þekkir til þess nema á takmarkaðann hátt. Húsið er hluti af dánarbúi. 

Nánari upplýsingar fást hjá:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: hrannar@domusnova.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.





 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
03/10/20146.430.000 kr.2.500.000 kr.167.7 m214.907 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1960
44 m2
Fasteignanúmer
2128438
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.100.000 kr.
Byggt 1970
48.2 m2
Fasteignanúmer
2128438
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
4.490.000 kr.

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hallstún Spilda 2
Hallstún Spilda 2
851 Hella
Jörð/Lóð
16.900.000 kr.
Skoða eignina Ystasel 27
Bílskúr
Skoða eignina Ystasel 27
Ystasel 27
109 Reykjavík
334.5 m2
Einbýlishús
1248
628 þ.kr./m2
210.000.000 kr.
Skoða eignina Leirdalur 24
Bílskúr
Skoða eignina Leirdalur 24
Leirdalur 24
190 Vogar
190.1 m2
Einbýlishús
524
620 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 49
Bílskúr
Skoða eignina Drekavellir 49
Drekavellir 49
221 Hafnarfjörður
264.5 m2
Einbýlishús
75
642 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin