Valborg ehf. kynnir eignina Árskógar 8, Reykjavík. Glæsileg 2ja-3ja herb, útsýnisíbúð á 9. hæð í lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri við Árskóga í Reykjavík ásamt stæði í upphituðu bílskýli hússins. Íbúðin er samtals 93,6 ferm. Einstakt útsýni er yfir borgina og til Esjunnar úr íbúðinni. Gólfefni í allri íbúðinni er dökkt parket með fiskbeinamynstri, utan votrýma sem eru flísalögð. Gott skipulag er á íbúðinni.
Nánari upplýsingar veitir Elvar Guðjónsson viðskfr og lögg fasteignasali, í síma 8954000, tölvupóstur elvar@valborgfs.is.
Nánari lýsing:
Forstofa/hol: Rúmgott með fataskáp.
Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting með viðarköntum, eldunareyju og nýlegum háf, gott skipulag.
Stofan: Rúmgóð með glæsilegu útsýni bæði til vesturs og norðurs frá gluggahliðum íbúðarinnar. Borðstofan er í opnu rými og góðu flæði við eldhúsið - gluggi til norðurs við borðstofu, setustofan hefur glugga í vestur og er útgengi frá henni út á góðar svalir (6,2 fm.), búið er að samþykkja svalalokun í húsinu Frábært útsýni yfir borgina og til Esjunnar.
Svefnherbergin; Eru tvö, stærra herbergið er með góðu skápaplássi. Hitt er opið í framhaldi af forstofu, skápur.
Baðherbergi: Flísalagt "í hólf og gólf" með "walk in" sturtuklefa og hvítri innréttingu. Upphengt salerni.
Þvottahús: Er í sérherbergi innaf forstofu með góðri innréttingu og borði. Lagnir fyrir vask til staðar. Flísar á gólfi.
Gólfefni á allri íbúðinni er dökkt parket með fiskbeinamynstri. Flísar eru á baðherbergi og í þvottaherbergi.
Myndavéla dyrasímakerfi og neyðarhnappa kerfi er í húsinu ásamt því að hægt er að opna hurðar á sameign og stigahúsum með rafmagns spjaldi.
Þetta er einstaklega falleg og vel um gengin íbúð með miklu útsýni.
Góð aðkoma er að húsinu - mörg sameiginleg bílastæði eru á lóðinni ásamt nokkrum hleðslustöðvum fyrir rafmagnsbíla.
Sameign er snyrtileg og góð aðkoma, flísalagt andyri og teppalagðir stigapallar eru mjög snyrtileg rými og vel um gengið.
Tvær lyftur eru hlið við hlið í stigahúsinu að Árskógum 8.
Húsið lítur vel út og hefur fengið gott viðahald - ekki er langt síða ytra byrði var yfirfarið og lagað og húsið málað. Þar að auki kemur fram að nýlega búið að skipta út öllu upprunalega glerinu. Heitavatnsinntakið ásamt lagnagrind hússins hefur verið endurnýjað. Báðar lyfturnar hafa verið teknar í gegn og drenið er sagt endurnýjað. Þvottaplan er fyrir eigendur bifreiða í bílageymslu.
Eignin er merkt 01-0902, skráð 93,6 fm. skv. fasteignaskrá HMS, þar af er íbúðin sjálf 89,4 fm. og sér geymsla á jarðhæð hússins 4,2 fm.
Íbúar við Árskóga 6 og 8 hafa aðgengi að ýmissi þjónustu og frístundastarfi, nánar um það er að finna á heimasíðunni Reykjavíkurborgar
- Húsvörður býr í húsinu sem annast almennt viðhald fyrir bæði Árskóga 6 og 8.
-Ýmis þjónusta er í boði í húsinu og er þar m.a. matsalur, hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa.
-Innangengt er í félagsmiðstöðina Árskóga þar sem er skipulagt félagsstarf á vegum Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og þar er mötuneyti og setustofa og hægt er að fá keyptan hádegismat og síðdegiskaffi virka daga.
-Sameiginlegur veislusalur, vinnustofa og salarkynni fyrir félagsstarf er í tengibyggingunni á milli Árskóga 6 og 8 og er mögulegt að fá leigt húsnæði fyrir afmælisveislur og aðra viðburði.
-Innangengt er yfir í hjúkrunarheimilið Skógarbæ sem er í sambyggðu húsi á sömu lóð. Einnig er púttvöllur utandyra sem íbúar hafa aðgang að.
- Skilyrði fyrir kaupum á eigninni er að vera í Félagi eldri borgara og vera 60 ára og eldri. Hingað til hefur verið hægt að ganga í félagið við kaup á íbúðum félagsins ef kaupendur 60 ára og eldri en eru ekki í félaginu.
- Hlutdeild í samkomusalnum á jarðhæðinni og í húsvarðaríbúð fylgir eigninni samkvæmt eignaskiptasamningi.
Eignin Árskógar 8 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 205-3965, birt stærð 93.6 fm.
Nánari upplýsingar veitir Elvar Guðjónsson , í síma 8954000, tölvupóstur elvar@valborgfs.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.