Fasteignaleitin
Skráð 17. sept. 2026

Mánabraut 16

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
260.3 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
185.000.000 kr.
Fermetraverð
710.718 kr./m2
Fasteignamat
163.550.000 kr.
Brunabótamat
136.550.000 kr.
Mynd af Vernharð S Þorleifsson
Vernharð S Þorleifsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1969
Garður
Svalir
Heitur pottur
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2064196
Landnúmer
115565
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Vernharð Þorleifsson lgf. og Magga Gísladóttir lgf. kynna til sölu einstaklega vel staðsett einbýlishús við Mánabraut 16 á sunnanverðu Kársnesinu.
Húsið er samtals 260,3 fm og stendur á 605 fm gróinni og skjólgóðri lóð.
Eignin er vel skipulögð og býður upp á rúmgóð og fjölbreytt rými sem henta vel fjölskyldufólki. Staðsetningin er afar góð í rólegri götu skammt frá sjónum og fallegum göngustígum meðfram strandlengjunni.
Efri hæð hússins er 182,4 fm, neðri hæðin 46,9 fm og bílskúr 31 fm.

Við mælum eindregið með að eignin sé skoðuð nánar í meðfylgjandi þrívíddarskoðun þar sem hægt er að ganga í gegnum öll rými hússins og átta sig vel á skipulagi þess og möguleikum.
Linkurinn inn á 3D


Stærstur hluti hússins er á einni hæð. Þar eru björt og rúmgóð stofa og borðstofa sem mynda fallegt alrými. Drápuhlíðargrjót prýðir einn vegg og setur sterkan svip á rýmið. Frá stofu er útgengt um stóra rennihurð út á svalir sem liggja meðfram húsinu að framan og snúa til suðurs í átt til sjávar.
Í húsinu eru stórt alrými fyrir stofu og borðstofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, tvö rúmgóð sjónvarps-/fjölskylduherbergi, fataherbergi, eitt baðherbergi, tvö gestasalerni, þvottahús og góð geymslurými. Auk þess fylgir rúmgóður bílskúr og heitur pottur.
Á neðri hæð er um 47 fm rými sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika. Þar mætti til dæmis útbúa sjónvarps- eða tómstundaherbergi, líkamsræktarrými, vinnuaðstöðu eða sérstakt rými fyrir unglinga og unga fólkið á heimilinu. Hringstigi tengir hæðirnar saman og úr rýminu á neðri hæð er gengið um stóra rennihurð beint út í garð sem snýr til suðurs.
Sveigjanlegt skipulag og fjölbreytt rými eru einn af helstu kostum eignarinnar og skapa góða möguleika á að laga húsið að ólíkum þörfum fjölskyldunnar.
Lóðin er einstaklega falleg, gróskumikil og skjólgóð með blómabeðum og fjölbreyttum gróðri sem myndar notalega umgjörð um húsið.
Staðsetningin er jafnframt einn af helstu kostum eignarinnar. Um 100 metrar eru að göngustígum við sjóinn og sundlaug, grunnskóli og leikskóli eru allt innan 500 metra fjarlægðar.
Húsið ber einkenni byggingarlistar áttunda og níunda áratugarins. Meðal annars með sýnilegum burðarbitum, mikilli timburnotkun og stórum gluggaflötum sem hleypa mikilli birtu inn í húsið.
Hönnun hússins og skipulag bjóða upp á mikla möguleika til breytinga og endurnýjunar. Eignin hentar vel sem rúmgott fjölskylduhús en skipulag hennar getur einnig gefið möguleika á að útbúa tvær aðskildar einingar.
Allar frekari upplýsingar veita Vernharð í síma 699 7372 / venni@remax.is og Magga í síma 698 7494 / magga@remax.is
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1969
31 m2
Fasteignanúmer
2064196
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.150.000 kr.

Myndir (45)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skjólbraut 2
Bílskúr
Skoða eignina Skjólbraut 2
Skjólbraut 2
200 Kópavogur
119,9 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
750 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Kópavogsbraut 59D
Hleðslustöð
Kópavogsbraut 59D
200 Kópavogur
105,7 m2
Einbýlishús
423
1134 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Langabrekka 35
Bílskúr
Á einni hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Langabrekka 35
Langabrekka 35
200 Kópavogur
153,4 m2
Einbýlishús
413
977 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Skerpluholt 11
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Skerpluholt 11
Skerpluholt 11
210 Garðabær
240 m2
Einbýlishús
513
935 þ.kr./m2
224.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin