Fasteignaleitin
Skráð 9. mars 2025

SPÁNAREIGNIR - Lomas De Cabo Roig

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
207 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
34.900.000 kr.
Fermetraverð
168.599 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2008216_1
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR NÝTT Í SÖLU:
*VEL STAÐSETTAR ÍBÚÐIR MEÐ SÉRGARÐI Á FRÁBÆRU VERÐI*-*LYFTUHÚSNÆÐI OG STÆÐI Í BÍLAKJALLARA*-*SUNDLAUG OG GRÆN SVÆÐI*-*GÖNGUFÆRI VIÐ VERSLANIR OG VEITINGASTAÐI, 2KM Á STRÖND*-*EINNIG ÍBÚÐIR Á 1, 2 OG EFSTU TIL SÖLU*

ERTU TILBÚIN(N) AÐ LIFA ÞÍNU BESTA LÍFI Í LEIK OG STARFI.
Vandaðar 2ja og 3ja herbergja íbúðir á frábærum stað í hinu vinsæla Lomas de Cabo Roig hverfi, örstutt frá góðum golfvöllum, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. 2km fjarlægð frá strönd og 20-30 mín. göngufæri í La Zenia Boulevard, vinsælustu verslunarmiðstöðina á svæðinu. Örstutt göngufæri í verslanir og veitingastaði. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast íbúð á góðu verði í frábæru umhverfi. Frábær fjárfesting, til útleigu og til að eyða frídögunum, eða til að búa í allt árið.

Allar upplýsingar veitir Berta Hawkins í síma 0034 615 112 869 eða berta@spanareignir.is


Nánari lýsing:
Um er að ræða lyftuhús með 2ja og 3ja herb. rúmgóðum og vel hönnuðum íbúðum. Íbúðirnar eru með einu eða tveimur svefnherbergjum og einu eða tveimur baðherbergjum, anddyri, góðri stofu/alrými og fallegu eldhúsi. Hægt er að velja íbúðir á jarðhæð, með sér garði, miðhæðum með svölum eða á efstu hæð og þá með svölum og þaksvölum. Fallegar innréttingar. Góð sameign með sundlaug, fallegum opnum grænum svæðum og leikvelli fyrir börn. Gott sérafnotarými fyrir framan allar íbúðirnar.
MÖGULEIKI Á AÐ KAUPA  STÆÐI Í BÍLAKJALLARA. VERÐ FYRIR STÆÐI 8.000 EVRUR + KOSTN.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast rúmgóða og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá öllu því sem gerir dvölina á Spáni skemmtilega.
Góðir skólar í næsta nágrenni, bæði spænskir og alþjóðlegir einkaskólar. Góð heilsugæsla í næsta nágrenni.
Rólegur staður en stutt er á fallega hvíta sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.
Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í nágrenninu, t.d. í Lomas de Cabo Roig Center og La Fuente.  Stutt í La Zenia Boulevard, vinsælu verslana, veitingastaða og afþreyingamiðstöðina. 
Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira.
Fjölbreytt úrval golfvalla er í næsta nágrenni, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. 

Verð miðað við gengi 1Evra=145ISK:
2ja herbergja íbúðir með einu svefnherb. og einu baðherb., verð frá 147.500 Evrur (21.400.000 ISK ) + 10% skattur og ca 3%kostn. við kaupin
3ja herbergja íbúðir með tveimur svefnherb. og tveimur baðherb. verð frá 185.500 Evrur (26.900.000ISK) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.

Rafmagnstæki innifalin í verði.
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar á næstu mánuðum og afhendast allar með sérafnotarétti fyrir framan íbúðirnar sem er ekki talinn með í fermetrafjölda eignar.

Jarðhæð með garði:
2 svefnh./2 baðh. = Verð 240.500 evrur - Aðeins ein eftir!
Stærð íbúðar 71 fm, sérgarður 136 fm.

Fyrsta hæð með svölum
2 svefnh./2 baðh. = Verð 200.500 evrum - Aðeins ein eftir!
Stærð íbúðar 71 fm, svalir 29 fm.

Önnur hæð með svölum
1 svefnh./1 baðh. = Verð frá 147.500 evrum
2 svefnh./2 baðh. = Verð frá 185.500 evrum
Stærðir íbúða 52-69 fm, svalir 9-18 fm.

Þriðja og efsta hæð með þaksvölum og sjávarútsýni
2 svefnh./2 baðh. = Verð frá 202.500 evrum
Stærðir íbúða 69-71fm, svalir 18-29 fm og þaksvalir 45-55 fm.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður, þakverönd, sér garður, stæði í bílakjallara,
Svæði: Costa Blanca, Lomas de Cabo Roig,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Flétturimi 11
Bílskúr
Opið hús:25. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Flétturimi 11
Flétturimi 11
112 Reykjavík
108.9 m2
Fjölbýlishús
311
734 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Gullsmári 7
Opið hús:25. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Gullsmári 7
Gullsmári 7
201 Kópavogur
75.6 m2
Fjölbýlishús
312
991 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Drómundarvogur 2
Bílastæði
Drómundarvogur 2
104 Reykjavík
145.2 m2
Fjölbýlishús
422
1032 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Rauðarárstígur 3
0S6A4004.jpg
Rauðarárstígur 3
105 Reykjavík
72.5 m2
Fjölbýlishús
312
964 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin