Fasteignaleitin
Skráð 4. júní 2026

Glitvellir 14

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
157.1 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
124.900.000 kr.
Fermetraverð
795.035 kr./m2
Brunabótamat
79.770.000 kr.
Byggt 2007
Pallur
Heitur pottur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
22934382
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Borg fasteignasala og María Mjöll kynna Glitvelli 14, Hafnarfirði. Einbýlishús á einni hæð með bílskúr. Heildarfermetrafjöldi hússins er 157,1 m2
þar af bílskúr 25,2 m2.
Skjólgóður sólpallur er við húsið með heitum potti.


Skipulag: Forstofa, eldhús, stofa, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, bílskúr er í dag nýttur sem herbergi, rúmgóður sólpallur, geymsluskúr á lóð.

Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu með harðparketi á gólfi og fataskápum, inn úr forstofu tekur á móti gangur/ hol þaðan er gengið inn í öll rými eignarinnar. Eldhús með hvítri innréttingu, ofn í vinnuhæð, granít borðplata, gott vinnupláss. Stofa og borðstofa eru í sameiginlegu rými, útgengt er úr borðstofu út á verönd. Granít sólbekkir eru í stofunni og harðparket á gólfi. Hjónaherbergi með góðum fataskápum, teppi á gólfi, útgengt er úr hjónaherbergi út í garð. Barnaherbergin eru þrjú með harðparketi á gólfum og fataskápum. Baðherbergið er nýlega endurnýjað að hluta, ný blöndunartæki, micro- sement á veggjum, upphengt salerni baðkar og sturta.
Þvottahús þaðan er einnig útgengt út í garð. Gott geymslupláss.
Búið að innrétta hluta bílskúr sem sjónvarpshol eða fimmta svefnherbergið e.t.v. gott geymsluloft er yfir hluta bílskúrs.
Pallur er meðfram eldhúsi og stofu, þar er heitur pottur frá Trefjum.
10-15 m2 geymsluskúr er á pallinum.
Steypt rúmgott bílaplan fyrir framan hús, þar er allt klárt til þess að tengja fyrir snjóbræðslu

Vel skipulagt einbýlishús á einni hæð, stutt í skóla og leikskóla og aðra þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir María Mjöll Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8663934 eða maria@fastborg.is


Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.





 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 6
Screenshot 2026-07-17 at 16.18.54.jpeg
Skoða eignina Hringhamar 6
Hringhamar 6
221 Hafnarfjörður
152.8 m2
Fjölbýlishús
524
717 þ.kr./m2
109.500.000 kr.
Skoða eignina Krosseyrarvegur 14
Opið hús:22. júlí kl 12:15-12:45
Krosseyrarvegur 14
220 Hafnarfjörður
107.7 m2
Einbýlishús
312
924 þ.kr./m2
99.500.000 kr.
Skoða eignina Ægisgata 28
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Ægisgata 28
Ægisgata 28
600 Akureyri
171.8 m2
Einbýlishús
624
651 þ.kr./m2
111.900.000 kr.
Skoða eignina Fléttuvellir 32
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Fléttuvellir 32
Fléttuvellir 32
221 Hafnarfjörður
214.4 m2
Einbýlishús
524
770 þ.kr./m2
165.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin