Björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð í góðu fjölbýli við Leirubakka 22 sem nýlega hefur verið mikið endurnýjuð að innan. Góð staðsetning í nálægð við alla helstu þjónustu eins og leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og verslun.
** Mikið endurnýjuð að innan
** 2 svefnherbergi
** Frábær fyrstu kaup
** Laus við kaupsamning
Nánari upplýsingar veita:Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð skv. HMS er 100,4m2, þar af 2 geymslur í sameign 6,6m2 og 10,4m2.
Eignin skiptist í anddyri, stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi, eldhús, búr/geymslu, baðherbergi og 2 geymslur í sameign.
Nánari lýsing:
Anddyri er með parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt með útgengi á rúmgóðar svalir. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I er rúmgott með parket á gólfi.
Svefnherbergi II er með parket á gólfi.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað með hvítri innréttingu, upphengdu salerni, sturtu með glervegg. Flísar á gólfi og veggjum.
Eldhús er nýlega endurnýjað með grárri innréttingu, ljósri borðplötu, bakaraofni, helluborði og innbyggðri uppþvottavél. Parket á gófli.
Búr/geymsla er við hliðna á eldhúsi. Parket á gólfi.
Tvær geymslur, 6,6m2 og 10,4m2, fylgja eigninni og eru staðsettar í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign ásamt sameiginlegur þvottahúsi.
Athygli er vakin á því að nokkrar myndir hafa verið sviðsettar með tölvutækni þar sem eignin er tóm til þess að gefa kaupendum hugmyndir um nýtingu eignarinnar. Frummyndir eru settar á eftir sviðsettum myndum.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.