LIND fasteignasala og Lára Þyri, löggiltur fasteignasali, kynna fallegt og vel skipulagt einbýli á tveimur hæðum með bílskúr í lokuðum botnlanga við Kjóahraun 6 í Hafnarfirði. Húsið stendur á afar eftirsóttum stað við hraunjaðarinn við Einarsreit, með fallegu útsýni til fjalla. Á neðri hæð er forstofa, eldhús, stofa, borðstofa, sjónvarpsrými, gestasnyrting, þvottahús og bílskúr. Útgengi úr stofu og frá bílskúr á skjógóðan pall með heitum potti. Aukabaðherbergi er í bílskúr. Á efri hæð eru þrjú rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi. Vönduð eign sem fengið hefur gott viðhald, sömu eigendur frá upphafi. Allir innveggir eru léttir svo auðvelt er að breyta skipulagi. Stutt í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Miðbær Hafnarfjarðar er í göngufæri með úrval veitingastaða og verslana.
Neðri hæð:
Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Flísar á gólfi, sérsmíðuð innrétting frá GKS með miklu skápaplássi. Gluggar á þrjá vegu.
Stofa og borðstofa: Opið og bjart rými, parket á gólfi. Útgengi á skjólgóða timburverönd með heitum potti. Fallegt útsýni yfir hraunið og til fjalla.
Sjónvarpsrými: Nokkur þrep niður úr borðstofu. Flísar á gólfi.
Gestansyrting: Flísar á gólfi, falleg, sérsmíðuð innrétting með handlaug, handklæðaskápur, salerni.
Þvottahús: Flísar á gólfi og veggjum. Vönduð innrétting með skolvaski, upphækkun undir vélum og góðu skápaplássi.
Bílskúr: Inn af þvottahúsi. Flísar á gólfi.
Auka baðherbergi er í horni bílskúrs með sturtu, handlaug og salerni. Útgengi á pall með heitum potti. Einnig sérinngangshurð við hlið bílskúrshurðar. Heitt og kalt vatn er í bílskúr.
Efri hæð:Fallegur stálstigi með mahogonyþrepum liggur upp á efri hæð.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, fataskápur. Útgengi á suðvestursvalir, fallegt útsýni yfir hraunið og til fjalla, Helgafellið blasir við.
Svefnherbergi 2: Parket á gólfi, fataskápur, útgengi á suðvestursvalir.
Svefnherbergi 3: Parket á gólfi, útgengi á norðaustursvalir.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, sérsmíðaðar innréttingar með tveimur handlaugum, baðkar, sturta, handklæðaofn, tveir opnanlegir gluggar.
Frágangur lóðarinnar er til fyrirmyndar og falleg aðkoma er að eigninni. Eign í sérflokki með glæsilegu útsýni á frábærum stað í Hafnarfirði, stutt í alla þjónustu, miðbærinn í göngufæri. Allar nánari upplýsingar veitir:
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.