Björgvin Þór Rúnarsson lgfs, Hrönn Ingólfsdóttir lgfs, s.692-3344 og Fasteignaland kynna í einkasölu stórglæsilegt einbýlishús í Hrauntungu 8 í Hafnarfirði. Um er að ræða einstaklega fallegt og reisulegt hús á tveimur hæðum með bílskúr og afar fallegum garði. Í húsinu eru í dag þrjú svefnherbergi og auðveldlega hægt að bæta fjórða svefnherberginu við.
Eignin er skráð alls
232,6 fm að stærð og þar af er bílskúrinn
41,2 fm.
Eignin skiptist þannig: Forstofa, tvö baðherbergi, eldhús, stofa og borðstofa. Þrjú góð svefnherbergi, þvottahús og sjónvarpshol. Þetta er frábærlega vel staðsett eign þar sem afar stutt er í skóla, leikskóla, verslun, þjónustu.
Þetta er glæsileg eign sem vert er að skoða á frábærum stað í Hafnarfirði þar sem stutt er í verslun, skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.Nánari lýsing eignar:Neðri hæð:
Forstofa: Góð forstofa með flísum á gólfi.
Hol: Rúmgott hol er við anddyri með góðum sérsmíðuðum skápum uppí loft.
Eldhús: Einstaklega falleg og stílhrein sérsmíðuð innrétting frá Parka með innbyggðum ísskáp, frystir og uppþvottavél. Stór gaseldavél og rafmagnsofn. Hiti í gólfi.
Stofa + borðstofa: Stofan er einstaklega björt og afar rúmgóð með útgengi út í garð á tveim stöðum. Fallegur arin prýðir stofuna.
þvottahús: Góðar innréttingar fyrir þvottavélar í vinnuhæð. Og miklir og góðir skápar. Útgengi út í garð.
Baðherbergi: Nýlega standsett baðherbergi með sturtu og góð innrétting og handklæðaofn. Flísalagt í hólf og gólf.
Efri hæð:
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með útgengi út á svalir. Fataherbergi innaf sem samkv. teikningu var fjórða svefnherbergið. Auðvelt að breyta því aftur ef þörf krefur.
Tvö svefnherbergi: rúmgóð svefnherbergi með skápum.
Baðherbergi: Nýlega standsett baðherbergi með baðkari. Falleg innrétting og handklæðaofn. Flísalagt í hólf og gólf.
Sjónvarpshol: Rúmgott sjónvarpshol með slitsterku teppi á gólfi.
Bílskúr: Rúmgóður bílskúr. Málað gólf og gert ráð fyrir bílahleðslu utan á skúr.
Nýlega hefur verið skipt um járn á þaki og allar rennur á húsinu. Í garðinum er einstaklega notarlegt lokanlegt garðhús sem hægt er að nýta allt árið. Hiti er í plani fyrir framan skúr. Kaldur geymsluskúr með rafmagni er á lóð sem er ca 12 fm.
Nánari upplýsingar veita:
Hrönn Ingólfsdóttir s.692-3344 eða hronn@fasteignaland.isBjörgvin Þór Rúnarsson s.855-1544 eða bjorgvin@fasteignaland.is
Með kveðju.
Björgvin Þór Rúnarsson
Eigandi / Löggiltur fasteigna- og skipasali.
bjorgvin@fasteignaland.is
00354-855-1544
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.