Fasteignaleitin
Opið hús:20. maí kl 17:00-17:30
Skráð 20. júní 2025

Huldubraut 15

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
236.7 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
215.000.000 kr.
Fermetraverð
908.323 kr./m2
Fasteignamat
179.400.000 kr.
Brunabótamat
131.700.000 kr.
Mynd af Hafdís Rafnsdóttir
Hafdís Rafnsdóttir
Fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2325656
Landnúmer
115158
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
síðan húsið var byggt
Raflagnir
síðan húsið var byggt
Frárennslislagnir
síðan húsið var byggt
Gluggar / Gler
síðan húsið var byggt
Þak
síðan husið var byggt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
tvennar
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Snjóbræðsla í innkeyrslu virkar ekki
Fasteignasalan TORG kynnir: Eign í sérflokki á rólegum stað við sjávarsíðuna á Kársnesinu. Um er að ræða mjög vandað parhús með möguleika á auka íbúðaraðstöðu samtals skráð skv fmr 236,7fm. Gólfsíðir gluggar, sérsmíðaðar innréttingar í eldhúsi, baðherbergjum og svefnherbergjum, marmari á borðum í eldhúsi, fallegt gólfefni, góð lofthæð og gróinn garður með heitum potti er m.a það sem einkennir þetta glæsilega hús ásamt fallegu útsýni. Sjón er sögu ríkari. Allar nánari upplýsingar veitir: Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

Sækja söluyfirlit HÉR

Neðri hæð:

Forstofa, gangur, hjónasvíta með fataherbergi, tvö svefnherbergi, baðherbergi með stórri sturtu, þvottahús, geymslu og „bílskúr“.  Hæðinni var áður skipt upp þannig að úr varð 2ja herb auka íbúðaraðstaða með sérinngangi.  Einfalt er að breyta því aftur í sér einingu. Rúmgott þvottahús/geymsla með innréttingu/eldhúsinnréttingu.  Innan við forstofu er gengið í rúmgóða geymslu og  “bílskúr“.
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með miklum fataskápum sem ná uppí loft.
Svefnherbergi: Innaf forstofu eru tvö rúmgóð parketlögð svefnherbergi með sérsmíðuðum fataskápum.           
Hjónasvíta: Innst á ganginum er rúmgóð hjónasvíta og þar innaf er fataherbergi, bæði rýmin eru parketlögð. Útgengt er framan við hjónaherbergi og baðherbergi út á pall með heitum potti og skjólgóðu rými. 
Baðherbergi: Viðhlið hjónasvítu er rúmgott baðherbergi með stórri sturtu sem er lögð með marmara.
Þvottahús/geymsla: Í þvottahúsi er góð innrétting (eldhúsinnrétting sem var hluti af íbúðaraðstöðu á neðri hæð).
Fataherbergi/geymsla: Í þessu rými, sem er framan við rúmgóða geymslu/„bílskúr“ er gott pláss fyrir fataskápa og/eða geymslu.  Hentar vel sem innri forstofa eða svokallað blautrými.
Efri hæð: Gengið er upp bjartan parketlagðan stiga uppá efri hæð hússins.
Stofur: stofan er rúmgóð og rúmar einnig sjónvarpsstofu. Stórir gluggar með fallegu útsýni yfir Fossvoginn, Öskjuhlíðina og í vestur út á Löngusker, útgengt er út á svalir frá stofunni. Gegnheilt parket er á gólfum að hluta og flotað að hluta, aðskilið með koparlistum. Gert er ráð fyrir arin á vesturvegg í sjónvarpsstofu, lokað reykrör er uppúr þaki.
Borðstofa: Við hlið eldhúss er rúmgóð borðstofa sem mögulegt er að loka og nota sem herbergi. Útgengt er út í garð og á verönd úr harðvið frá borðstofu/eldhúsi.
Eldhús: eldhúsið er glæsilegt með fallegri sérsmíðaðri innréttingu úr reyktri eik, hamrað gler er að hluta til í efri skápum sem setur skemmtilegan svip á innréttinguna. Stór marmaraklædd eyja er í eldhúsinu með gashelluborði, ísskápur er innbyggður og einnig eru stórar ísskápsskúffur í innréttingunni. Ofninn er í vinnuhæð og uppþvottavél innbyggð.
Herbergi: herbergið er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi.  Á upphaflegri teikningu er gert ráð fyrir að þetta rými sé sjónvarpsstofa, þá væru skápar í þessu herbergi færðir í hjónasvítu.  Þessir skápar gætu nýttst sem viðbót í fataherbergi á neðri hæð.
Baðherbergi: glæsilegt baðherbergi er flísalagt að hluta með fallegri innréttingu, upphengdu salerni og góðri sturtu með innbyggðum blöndunartækjum.
Góð loftræsting er í húsinu með stórum blásara á þaki sem er hraðastilltur í baðherbergjum og þvottahúsi á neðri hæð. Rými undir stiga er nýtt sem geymsla.
Garður og aðkoma: aðkoman er falleg, hellulagt bílaplan, steyptir veggir með lýsingu, verönd úr harðvið og heitur pottur. Í garðinum er svokallað úthagatorf í stað hefðbundins grass, krefst mjög lítillar umhirðu. Fallegt reynitré er í garðinum og hraunhleðsla á móti húsinu.
Niðurlag: þetta er glæsileg eign á eftirsóttum stað í Kársnesi Kópavogs. Allar nánari upplýsingar veitir: Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is


 
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/06/201552.750.000 kr.55.500.000 kr.236.7 m2234.474 kr.
25/10/20128.600.000 kr.32.000.000 kr.236.7 m2135.192 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (63)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vesturbrú 1
Bílastæði
Skoða eignina Vesturbrú 1
Vesturbrú 1
210 Garðabær
181.7 m2
Fjölbýlishús
624
955 þ.kr./m2
173.500.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 2
Opið hús:17. maí kl 16:00-16:30
DJI_0267 Large.jpeg
Skoða eignina Naustavör 2
Naustavör 2
200 Kópavogur
83.1 m2
Fjölbýlishús
211
889 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Skoða eignina Tómasarhagi 17
Bílskúr
Opið hús:19. maí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Tómasarhagi 17
Tómasarhagi 17
107 Reykjavík
197.6 m2
Fjölbýlishús
625
885 þ.kr./m2
174.900.000 kr.
Skoða eignina Jónsgeisli 79
Bílskúr
Opið hús:17. maí kl 14:00-14:30
Skoða eignina Jónsgeisli 79
Jónsgeisli 79
113 Reykjavík
196 m2
Parhús
514
852 þ.kr./m2
166.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin