Miklaborg kynnir:
Vel skipulögð og björt 94 fm, 3ja herbergja íbúð á 2.hæð í íbúðum fyrir 60 ára og eldri á Seljarnarnesi. Húsið hefur verið mikið endurnýjað að utan á síðustu mánuðum.
NÁNARI LÝSING:
Komið inn í anddyri með skápum Rúmgott forstofuherbergi með skápum. Eldhús er með upprunalegri, snyrtilegri innréttingu og borðkrók. Inn af eldhúsi er gott búr. Stofan er björt og rúmgóð með gluggum í suður og vestur. Gengið er út á verönd til suðurs úr stofu með útsýni út á fjörðinn. Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum. Baðherbergið er upprunalegt og þarfnast endurnýjunar. Á baði er sturta. Við inngang á hægri hönd er geymsla með tengi fyrir þvottavél.
Um er að ræða dánarbú og ekki herfur verið búið í eigninni í mörg ár og er því tilboðsgjafi hvattur til að skoða eignina vel.
Öflugt félagsstarf er haldið í húsinu og er húsvörður starfandi á vegum húsfélagsins. Hægt er að fá heitan mat í hádeginu og morgunkaffi.
Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
113 | 85,7 | 73,9 | ||
104 | 130,9 | Tilboð | ||
221 | 108 | 78,5 | ||
201 | 153,1 | 107,5 | ||
310 | 104,6 | 60 | ||
210 | 116,6 | 122,9 |