Fasteignaleitin
Opið hús:01. okt. kl 18:00-18:30
Skráð 21. júní 2026

Eirhöfði 7D íb.413

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
125.6 m2
3 Herb.
Verð
158.000.000 kr.
Fermetraverð
1.257.962 kr./m2
Fasteignamat
106.200.000 kr.
Brunabótamat
78.500.000 kr.
Byggt 2025
4. hæð
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2534545
Landnúmer
233296
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Númer íbúðar
13
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Svavar Friðriksson fasteignasali og Fasteignasalan TORG kynna glæsilega íbúð við Eirhöfða 7 á Ártúnshöfða. Nánari upplýsingar veitir Svavar í síma 623-1717 eða á svavar@fstorg.is.
Ártúnshöfði er í uppbyggingu sem nýr borgarhluti Reykjavíkur. Við Eirhöfða 7 er boðið upp á vandaðar íbúðir þar sem lögð er áhersla á björt rými, gott skipulag og nútímalega hönnun. [Skoða heimasíðu verkefnisins]
**Kaupendum býðst að nýta UMBRA20 fjármögnunarleiðina, sem getur auðveldað kaup með 10% útborgun.** [Nánari upplýsingar um UMBRA20]
Íbúð 413 er glæsileg þriggja herbergja íbúð á 4. hæð, samtals 125,6 m² að stærð, þar af 13 m² sérgeymsla. Íbúðin er seld án bílastæðis. Kaupanda gefst kostur á að kaupa sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu sérstaklega fyrir 7 m.kr.
Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, bjart alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, baðherbergi, sérþvottahús og anddyri með góðu skápaplássi.
Alrýmið er rúmgott og opið, með stórum. Eyja í eldhúsi tengir rýmin saman. Frá stofu er gengið út á 72 m² þaksvalir með glæsilegu útsýni.
Innréttingar eru í dökku eikarlitaþema frá Voké-III og gefa íbúðinni hlýlegt og fágað yfirbragð. Quartz-borðplötur, Miele-heimilistæki og GROHE-blöndunartæki undirstrika vandaðan frágang. Baðherbergið er flísalagt og í íbúðinni er vélræn loftræsting.
Athugið: Myndir í auglýsingu eru teknar í sýningaríbúð verkefnisins og eru ekki af íbúð 413.

Húsin standa á Hamrinum, einum hæsta stað Ártúnshöfða, með útsýni yfir Reykjavík, Elliðaárvog, Esjuna og nærliggjandi náttúru. Stutt er í útivistarsvæði Elliðaárdals, strandstíga og göngu- og hjólaleiðir.
Við hönnun verkefnisins hefur verið lögð áhersla á nútímalegan arkitektúr, vandaðan frágang og vel skipulögð sameiginleg svæði. Bílakjallari er undir húsunum, með góðu aðgengi að íbúðum.

Á næstu árum er fyrirhuguð frekari uppbygging á Ártúnshöfða, meðal annars verslun, þjónusta, veitingastaðir og almenningssamgöngur.

Nánari upplýsingar veitir Svavar Friðriksson fasteignasali í síma 623-1717 tölvupóstur svavar@fstorg.is 


Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan TORG
https://www.fstorg.is

Myndir (49)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 35, íb. 208
Bílastæði
Opið hús:01. okt. kl 17:30-18:00
Hringhamar 35, íb. 208
221 Hafnarfjörður
117.9 m2
Fjölbýlishús
413
720 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Skyggnisbraut 15
Bílastæði
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:04. okt. kl 15:00-15:30
Skoða eignina Skyggnisbraut 15
Skyggnisbraut 15
113 Reykjavík
91.2 m2
Fjölbýlishús
312
854 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Ásvellir 5 íb. 301
Bílastæði
Opið hús:30. sept. kl 16:30-17:30
Ásvellir 5 íb. 301
221 Hafnarfjörður
108.7 m2
Fjölbýlishús
312
891 þ.kr./m2
96.900.000 kr.
Skoða eignina Ásvellir 5 íb. 404
Bílastæði
Opið hús:30. sept. kl 16:30-17:30
Ásvellir 5 íb. 404
221 Hafnarfjörður
105.5 m2
Fjölbýlishús
312
1013 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin