Fasteignaleitin
Opið hús:14. júlí kl 17:30-18:00
Skráð 11. júlí 2026

Sunnusmári 5

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
65.900.000 kr.
Fasteignamat
59.450.000 kr.
Brunabótamat
42.980.000 kr.
Mynd af Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2522544
Landnúmer
226233
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
05
Hæðir í húsi
6
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðvestursvalir
Lóð
0,29
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Domusnova, Ingunn Björg og Andri Hrafn kynna bjarta og fallega 2 herbergja íbúð á 5 hæð ( efstu), ásamt bílastæði í upphituðum bílakjallara í nýlegu lyftuhúsi við Sunnusmára 5 Kópavogi. 
Aukin lofthæð er í íbúðinni, eldhús og stofa eru í opnu alrými, rúmgott svefnherbergi með góðum fataskápum, baðherbergi með walk inn sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Rúmgóðar skjólríkars suðvestur svalir með góðri fjarlægð frá nærliggjandi byggingum. Sérmerkt bílastæði. Skv. HMS er eignin skráð 56,3 fm, þar af er 9,9 fm geymsla í kjallara. 

Eignin getur verið laus við undirritun kaupsamnings. 

Frábær staðsetning miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem örstutt er í alla helstu þjónustu og út á stofnbrautir. 

Nánari lýsing eignar:

Alrými, eldhús / stofa:
Falleg og rúmgóð dökk eldhúsinnrétting frá Nobilia. Innbyggð uppþvottavél ásamt innbyggðum ísskáp með frysti, bakaraofn í vinnuhæð, span helluborð. Harðparket á gólfi, gluggar í stofu snúa til suðurs, útgengt á rúmgóðar suðvestur svalir. Fataskápur með hengi og skógrind. 
Herbergi: Rúmgott og bjart herbergi með góðum fataskápum, með skúffum, hillum og hengi. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Dökk innrétting undir vaski með skúffum, speglaskápur á vegg, walk inn sturta, handklæðaofn, upphengt salerni, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og veggjum að hluta.
Svalir: Skjólríkar 7 fm suðvestur svalir þar sem hægt er að njóta sólar frá morgni og fram á kvöld. Góð fjarlægð frá nærliggjandi byggingum. 
Bílastæði: Í upphituðum bílakjallara, búið er að leggja lagnir fyrir rafhleðslustöð. 
Lóð: Hellulagðar stéttar upp við og í kringum hús, tyrfðar flatir, sameiginleg bílastæði á lóð fyrir framan hús. 
Húsið: ÞG verk er verktaki hússins, Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klætt álklæðningu sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini. 

Ath! Mynd með húsgögnum er tölvuteiknuð. 

Nánari upplýsingar veita:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is

Andri Hrafn Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.6982127 / andri@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
05/06/202334.150.000 kr.56.900.000 kr.56.3 m21.010.657 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2023
Fasteignanúmer
2522544
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B2
Númer eignar
6
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.930.000 kr.

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Holtsvegur 37
Skoða eignina Holtsvegur 37
Holtsvegur 37
210 Garðabær
140.6 m2
Fjölbýlishús
523
1208 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 18
Bílastæði
Opið hús:12. júlí kl 16:00-17:00
Skoða eignina Hafnarbraut 18
Hafnarbraut 18
200 Kópavogur
156.9 m2
Fjölbýlishús
322
1274 þ.kr./m2
199.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 18
Bílastæði
Opið hús:12. júlí kl 16:00-17:00
Skoða eignina Hafnarbraut 18
Hafnarbraut 18
200 Kópavogur
169.7 m2
Fjölbýlishús
422
1302 þ.kr./m2
220.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 18
3D Sýn
Bílastæði
Opið hús:12. júlí kl 16:00-17:00
Skoða eignina Hafnarbraut 18
Hafnarbraut 18
200 Kópavogur
193.7 m2
Fjölbýlishús
624
1290 þ.kr./m2
249.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin