Fasteignaleitin
Skráð 28. jan. 2026

Þorraholt 17 (ÞAKÍbúð)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
197.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
220.000.000 kr.
Fermetraverð
1.116.185 kr./m2
Fasteignamat
13.950.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
3. hæð · efsta
Garður
Svalir
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2539656
Landnúmer
234802
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
07
Vatnslagnir
Nýjar
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýjar
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
--- Glæsileg 3ja - 4ra herbergja þakíbúð við Þorraholt 17 í Garðabæ með 2 bílastæði í bílakjallara, 2 baðherbergi, þvottaherbergi og rúmgóðum þaksvölum til suðurs ---

ATH: Ljósmyndir eru ekki úr þakíbúð heldur úr 3ja herb. sýningaríbúð.

Skoða verkefnið nánar á hlekk: www.thorraholtid.is Upplýsingar gefur: Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti: Nýjar og glæsilegar íbúðir við Þorraholt 17 í Garðabæ. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 3ja herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði í bílakjallara íbúðum. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt séreignageymslu á jarðhæð. 

Íbúð 307: Er glæsileg 197,1 fermetra 4ra - 5 herbergja penthouse íbúð á 3. hæð með stórum 40,6 fermetra þaksvölum til suðurs og tveimur sérmerktum bílastæðum í lokuðum bílakjallara. Tvær góðar geymslur fylgja íbúðinni sem eru 26,6 fermetrar og 10,4 fermetrar að stærð. Afhending er í mars-apríl 2026 með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið.

Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús í alrými með eyju sem er opið við stofu/borðstofu, 3 svefnherbergi (möguleiki á 4 svefnherberginu), 2 baðherbergi og þvottaherbergi. Útgengt á svalir frá stofu.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir og klæddir að utan sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini nema á efstu hæðum þar eru veggir hefðbundnir gifsveggir.


Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: www.thorraholtid.is

Þorraholt stendur á einstökum stað í Garðabæ – í grónu og friðsælu umhverfi þar sem náttúra og þægindi borgarlífs fara saman. Hér eru fjölbreytt útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir rétt við heimilið, auk þess sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu. Garðabær er þekktur fyrir öflugt samfélag, góðar samgöngur og fjölbreytt tækifæri til íþrótta, menningar og útivistar – allt sem þarf fyrir virkt og innihaldsríkt daglegt líf.

Svæðið í kringum Þorraholt býður upp á jafnvægi milli rólegrar náttúru og nálægðar við líflega miðju höfuðborgarsvæðisins. Hér getur þú notið kyrrðarinnar heima fyrir og verið samt aðeins örfáum mínútum frá vinnu, verslun og afþreyingu. Það gerir Þorraholt að kjörnum stað fyrir þá sem vilja bæði lífsgæði og þægindi í senn.

ÞG Verk hafa yfir 25 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 

Ef misræmi er á milli eignaskiptasamnings, söluyfirlits og/eða sölusíðu þá gilda þær upplýsingar sem koma fyrir í eignaskiptasamningi og samþykktum teikningum. 

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

Innréttingar: 
Í eldhúsum og baðherbergjum eru Nobilia innréttingar frá GKS. Eldhúsinnréttingar eru mismunandi útfærðar eftir íbúðum. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á aðalbaðherbergjum. 

Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni Electrolux. Íbúðum er skilað með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu eða lofthengdum eyjuháfi þar sem það á við.

Hreinlætistæki: Salernisskál (Laufen) er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru hitastýrð frá Damixa. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Eignin afhendist skv meðfylgjandi skilalýsingu. 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
2539656
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B1
Númer eignar
2
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Fasteignanúmer
2539656
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B1
Númer eignar
3
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vesturbrú 1
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Vesturbrú 1
Vesturbrú 1
210 Garðabær
181.7 m2
Fjölbýlishús
624
927 þ.kr./m2
168.500.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 36
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 36
Naustavör 36
200 Kópavogur
108.3 m2
Fjölbýlishús
211
922 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Tröllakór 2-4
Bílastæði
Hleðslustöð
Opið hús:06. ágúst kl 16:45-17:15
Skoða eignina Tröllakór 2-4
Tröllakór 2-4
203 Kópavogur
111.8 m2
Fjölbýlishús
312
741 þ.kr./m2
82.800.000 kr.
Skoða eignina Brimdalur 14
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Brimdalur 14
Brimdalur 14
260 Reykjanesbær
185 m2
Parhús
514
675 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin