Fasteignasalan Torg kynnir : Bjarta og vel skipulagða 118,6 fm. fjögurra herbergja íbúð við Nónhæð 2, 210 Garðabæ með sér bílskúr. ( þar af er bílskúr 18,5 fm.)
Íbúðin samanstendur af anddyri, gangi, þrjú svefnherbergi, opnu alrými stofa/borðstofa og eldhús. Baðherbergi og sér þvottahús. Auk þess er sameiginleg hjóla-vagnageymsla í sameign hússins.
Allar nánari upplýsingar veitir Gunnar Patrik löggiltur fasteignasali í gsm 822-9415 eða gunnar@fstorg.isNánar um eignina:Forstofa með góðu skápaplássi, parket á gólfi.
Hol rúmgott og bjart með parketi á gólfi.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, stór gufugleypir, tengi fyrir uppþvottavél, eldhúskrókur við útsýnisglugga, parket á gólfi. Eldhús er opið inn í stofuna. Einstaklega fallegt útsýni.
Stofa er mjög rúmgóð og björt með parketi á gólfi, útgengt út á yfirbyggðar suður svalir með einstaklega fallegu útsýni til suðurs og vesturs.
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Svefnherbergi II parket á gólfi.
Svefnherbergi III nýtt í dag sem skrifstofa, útskotsgluggi, parket á gólfi.
Baðherbergi er með flísar á gólfi og á hluta af veggjum. Hvít innrétting með handlaug, efri og neðri skápum. Salerni, handklæðaofn og baðkar með sturtuaðstöðu. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.
Þvottahús/búr innan af eldhúsi með hillum, innréttingu og skolvaski.
Bílskúrinn er með rafmagni, heitu og köldu vatni.
Hjóla - og vagnageymsla.- Hús nýlega múrviðgert og málað á austur og vesturhlið
- Skipt um glugga á austurhlið.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr. 3.800.- kr. af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.