Fasteignaleitin
Skráð 19. ágúst 2026

Eyjabakki 5

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
70.1 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
56.400.000 kr.
Fermetraverð
804.565 kr./m2
Brunabótamat
38.150.000 kr.
Byggt 1971
Svalir
Pallur
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
204757312
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Atli og Hrafnkell á Lind kynna í einkasölu þessa rúmgóðu og mikið endurnýjuðu 2ja herbergja eign við Eyjabakka 5. Eignin er vel skipulögð á fyrstu á hæð með svölum og er því á sami palli og inngangurinn í húsið þannig að ekki þarf að fara upp og niður stigann á stigaganginum.

Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR: Birt stærð 70.1 fm (þar af geymsla 4.8 fm).

Nánari upplýsingar:
Atli Karl LGF. / 662 4252 / atli@fastlind.is 
Hrafnkell Pálmi LGF. / 690 8236 / hrafnkell@fastlind.is


Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu með útgengi á svalir, baðherbergi, svefnherbergi og sér geymslu í sameign.

Nánari lýsing:
Gengið er inn í forstofu með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi er beint af augum og er mjög rúmgott með miklu skápaplássi og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólfi og gólf með upphengdu salerni og walk in sturtu með glerþyli.
Eldhús er opið á tvo vegu og er með gott skápa og vinnupláss með parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í rúmgóðu alrými sem er bjart með stórum gluggum, útgengi á svalir og partket á gólfi.

Sér geymsla og þvottahús í sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu.

Endurnýjunarsaga seljanda:
Miklar endurbætur voru gerðar á íbúðinni árið 2020.
- Baðherbergi endurskipulagt, nýjar flísar frá Vídd í hólf og gólf. Walk in sturta. Allt endurnýjað salerni og innrétting frá Ikea.
- Nýtt parket á allri íbúðinni frá Birgisson.
- Nýjar innihurðir frá Birgisson.
- Nýir skápar frá Ikea í forstofu og svefnherbergi.
- Nýir ofnar í allri íbúðinni.
- Nýtt gler í öllum gluggum.
- Ný eldhúsinnrétting frá Ikea, borðplötur í eldhúsi frá Fantofell, nýr ofn og helluborð frá Rafha.
- Skipt um rafmagnstöflu og dregið nýtt rafmagn.
- Ný blöndunartæki á baðherbergi og í eldhúsi.

Eyjabakkinn er staðsettur við Elliðaárdalinn svo stutt er í frábært útivistarsvæði og alla þjónustu í Mjóddinni.

Sameiginleg bílastæði á lóð þar sem hægt er að hlaða rafbíl.


Lind fasteignasala ehf kynnir eignina Eyjabakki 5, 109 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 204-7573 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Nánari upplýsingar veitir Atli Karl Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 6624252, tölvupóstur atli@fastlind.is.

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
101 Reykjavík fasteignasala
www.101.is

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Smyrilshólar 6
Skoða eignina Smyrilshólar 6
Smyrilshólar 6
111 Reykjavík
84.6 m2
Fjölbýlishús
312
743 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Steinhöfði 4
406 steinhöfði.jpg
Skoða eignina Steinhöfði 4
Steinhöfði 4
110 Reykjavík
84.7 m2
Fjölbýlishús
312
996 þ.kr./m2
84.400.000 kr.
Skoða eignina Steinhöfði 2
101 Steinhöfði.jpg
Skoða eignina Steinhöfði 2
Steinhöfði 2
110 Reykjavík
89 m2
Fjölbýlishús
312
920 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Friggjarbrunnur 53
Efsta hæð
Opið hús:14. sept. kl 18:00-18:30
Friggjarbrunnur 53
113 Reykjavík
71.6 m2
Fjölbýlishús
212
920 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin