Fasteignaleitin
Skráð 15. feb. 2026

Þórshamrar 0

EinbýlishúsSuðurnes/Garður-250
142 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
53.800.000 kr.
Fermetraverð
378.873 kr./m2
Fasteignamat
61.950.000 kr.
Brunabótamat
68.900.000 kr.
Mynd af Páll Þorbjörnsson
Páll Þorbjörnsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2095498
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
upprunanlegt
Raflagnir
upprunanlegt
Frárennslislagnir
upprunanlegt
Gluggar / Gler
upprunanlegir / þarfnast endurnýjunar
Þak
Endurnýjað járn á þaki
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sólpallur
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Eignin er komið á mjög mikið viðhald. Endurnýja þarf, glugga og gler, klæðningu, lagnir hverju sem það nefnist, gólfefni, hurðum, innréttingum. 
Kvöð / kvaðir
Eignin selst í því ástandi sem hún er í og mun seljandi ekki gera neinar endurbætur á henni fyrir sölu. Væntanlegum kaupendum er því bent á að skoða eignina með það í huga. Hluti af girðingum og lausafé eru komnar út fyrir lóðarmörk eignar og yfirtekur kaupandi þær kvaðir að fella þær beri svo undir. Þrjú ár eru eftir af lóðarleigusamningi eignarinnar.
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Þórshamrar 0 (Gerðavegur 14) , 250 Garður, birt stærð 142.0 fm. Timnurhús byggt árið 1980. Til eru stimplaðar teikningar fyrir 46 fm bílskúr á lóð.

Eignin skiptist í forstofu, herbergjagang með fjórum barnaherbergjum ásamt hjónaherbergi samtals fimm svefnherbergi, þvottahús, eldhús og stofu. Geymsluloft er aðgengilegt frá þvottahúsi.

Lóð er með aflokuðum sólpall framan við hús með heitum pott, ástands hans er ekki vitað. Á palli eru tvær geymslur. Baklóð er aflokuð með geymsluskúr.

Staðsetning eignar er í útjaðri byggðar, ekið niður Gerðaveg.


Nánari upplýsingar veitir: Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is.

Nánari lýsing eignar:
Eignin er komin á almennt viðhald, búið er að klæða með báruklæðningu eina hlið eignar og járn á þaki hefur verið endurnýjað.  Að innan er komið tími á gólfefni, hurðar, yfirferð / endurnýjun á veitu og raflögnum eignarinnar, innréttingum o.fl.


Athygli er vakin á því að seljandi hefur ekki búið í eign og þekkir því ekki ástand hennar að öðru leyti en fram kemur í söluyfirliti sem er fylgiskjal með kauptilboði þessu. Seljandi getur ekki veitt frekari upplýsingar um ástand hennar en hægt er að kynna sér við almenna skoðun og skv. söluyfirliti. Seljandi bendir því væntanlegum kaupendum á að gæta sérstakrar árvekni við skoðun á eigninni og að þeir leiti sér aðstoðar sérfræðinga til að meta ástand eignarinnar. Seljandi mun ekki gera neinar endurbætur né þrif á henni fyrir sölu. 
Kauptilboð í eignir skulu hafa lágmarks gildistíma 2 virka daga (48 tíma)

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/07/200714.310.000 kr.18.700.000 kr.188.7 m299.099 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Klausturhólar C gata 17
3D Sýn
Klausturhólar C gata 17
805 Selfoss
91 m2
Sumarhús
513
603 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Hringbraut 107
Skoða eignina Hringbraut 107
Hringbraut 107
101 Reykjavík
52.7 m2
Fjölbýlishús
211
972 þ.kr./m2
51.200.000 kr.
Skoða eignina Hraunbær 124
Opið hús:18. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hraunbær 124
Hraunbær 124
110 Reykjavík
65.7 m2
Fjölbýlishús
211
805 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Skoða eignina Lyngmói 16
Bílskúr
Skoða eignina Lyngmói 16
Lyngmói 16
260 Reykjanesbær
255.2 m2
Einbýlishús
815
662 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin