Fasteignaleitin
Skráð 21. okt. 2026

Sporðalda 2c

RaðhúsSuðurland/Hella-850
80.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
52.900.000 kr.
Fermetraverð
657.143 kr./m2
Brunabótamat
46.550.000 kr.
Byggt 2022
Pallur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
25158011
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Eignamiðlun kynnir:

Vel skipulagt, nýlegt raðhús á einni hæð. Frábær fyrstu kaup!

*** Sækja söluyfirlit ***

Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is 

Um er að ræða nánar tiltekið Sporðöldu 2c, 850 Hellu, F2515801. 4ra herbergja raðhús á einni hæð. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 80,5 fm. Íbúðarrými skiptist í eldhús og stofu í opnu alrými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, sér þvottahús, anddyri og gang. Geymsluskúr er í garðinum sem er óskráður. 

Nánari lýsing eignar: 
Anddyri er flísalagt. 
Gangur er parketlagður.
Eldhús er opið í alrými með stofu. Snyrtileg hvít innrétting með efri skápum með viðaráferð og opnum hillum. Innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél. Parket á gólfi. 
Stofa er í opnu alrými með eldhúsi. Parket á gólfi. Útgengt er á timburverönd með skjólveggjum. 
Herbergi 1 er rúmgott hjónaherbergi, með fataskáp. Parket á gólfi.
Herbergi 2 er barnaherbergi, með fataskáp. Parket á gólfi. 
Herbergi 3 er barnaherbergi, með fataskáp. Parket á gólfi. 
Baðherbergi er með snyrtilegri innréttingu með skúffum handlaug og efri speglaskáp. Upphengt salerni, stór walk-in sturta. Handklæðaofn. Baðherbergið er flísalagt á gólfi og við sturtu. 
Sér þvottahús er með góðri hvítri innréttingu sem gerir ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Vaskur og gott skápapláss. 
Geymsluskúr er í garðinum sem er óskráður. 

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar. 
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í. 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eyrarholt 12
Efsta hæð
Skoða eignina Eyrarholt 12
Eyrarholt 12
220 Hafnarfjörður
75,6 m2
Fjölbýlishús
312
845 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Barmahlíð 41
3D Sýn
Kjallaraíbúð
Opið hús:24. okt. kl 14:00-14:30
Skoða eignina Barmahlíð 41
Barmahlíð 41
105 Reykjavík
71,3 m2
Fjölbýlishús
211
798 þ.kr./m2
56.900.000 kr.
Skoða eignina Þórunnarstræti 106C
Þórunnarstræti 106C
600 Akureyri
85,3 m2
Fjölbýlishús
122
632 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Þórunnarstræti 106A
Þórunnarstræti 106A
600 Akureyri
90,5 m2
Fjölbýlishús
312
569 þ.kr./m2
51.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin