Skráð 29. jan. 2026

Valshlíð 1

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
111.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
1.349.235 kr./m2
IF
Irpa Fönn Hlynsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Lyfta
Garður
Útsýni
Aðgengi fatl.
Fasteignanúmer
2532721
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi
Matsstig
U - Leyfi útrunnið

Hlíðarhorn.is kynnir Valshlíð 1- Íbúð 502.

Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin afhendist fullbúin í mars 2026.

Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.

S8 ehf. býður fjölbreyttar leiðir til að eignast eða flytja í nýtt og glæsilegt heimili á frábærum stað í miðborginni. Skoðaðu hvaða leiðir eru í boði á s8.is eða sendu fyrirspurn á s8@s8.is eða hlidarhorn@s8.is. Þú getur líka hringt í síma 4152500 og fengið allar upplýsingar um íbúðina, bókað skoðun beint í Hlíðarhorni, mátað íbúðina og við finnum þá leið sem hentar þér best.

Virðuleg og einstaklega vönduð 3ja herbergja þrílýst þakíbúð á 5. hæð í vesturenda Hlíðarhorns. Birt stærð er 111,1 fm þar af 5,9 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á stórar þaksvalir, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með hágæða sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens, Witt og Temptech í hæsta gæðaflokki, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Hlíð 2. Íbúðin er fyrir 50 ára og eldri.

Nánari lýsing: Í anddyri er góður fataskápur. Gengið er úr anddyri beint inn í rúmgott alrými, eldhús og stofu/borðstofu með útgengi á rúmlega 45 fm þaksvalir með tengi fyrir heitan pott. Svarbrún eldhúsinnrétting með viðaráferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og hágæða ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Öll eldhúsraftæki af hæsta gæðaflokki. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Vínkælir. Rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum. Svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, svarbrún innrétting með viðaráferð og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki á baði úr byssybláu stáli. Innbyggð blöndunartæki í sturtu. Afmörkuð aðstaða og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð í innréttingu á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0004. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

ATH. Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Á heimasíðu Hlíðarhorns, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir í auglýsingu geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Valshlíð 5
Skoða eignina Valshlíð 5
Valshlíð 5
102 Reykjavík
115.2 m2
Fjölbýlishús
413
1258 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 3
50 ára og eldri
Skoða eignina Valshlíð 3
Valshlíð 3
102 Reykjavík
118.2 m2
Fjölbýlishús
514
1268 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarfótur 19
Bílskúr
Bílastæði
Opið hús:29. jan. kl 16:00-16:30
Hlíðarfótur 19
102 Reykjavík
144.7 m2
Fjölbýlishús
312
1001 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarfótur 19 (507)
Bílskúr
Bílastæði
Hlíðarfótur 19 (507)
102 Reykjavík
144.7 m2
Fjölbýlishús
312
1001 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin