Fasteignaleitin
Skráð 4. okt. 2024

Valshlíð 3

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
104.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
131.900.000 kr.
Fermetraverð
1.257.388 kr./m2
Fasteignamat
91.350.000 kr.
Brunabótamat
59.250.000 kr.
IF
Irpa Fönn Hlynsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Fasteignanúmer
2532728
Landnúmer
223517
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B3 - Fullgerð bygging að utan og tilbúin til innréttingar

Hlíðarhorn.is kynnir Valshlíð 3 - Íbúð 509.

Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin afhendist fullbúin við kaupsamning. Með í kaupum á íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í sérreknum bílakjallara (langtímaleiga með íbúð).

Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.

S8-Sameign: Verð íbúðar miðað við 25% sameign er 98,925,000. S8 ehf. sem byggingaraðili heldur eftir 25% af íbúðinni í 10 ár skv sameignarsamningi sem er undirritaður samtímis og kaupsamningur. Helstu spurningar og svör hvað varðar sameignarleiðina má finna hér.

S8-leiga: Íbúðin er einnig í boði til leigu að lágmarki í 1 ár. Leiguverð íbúðar fylgir markaðsverði á hverjum tíma að viðbættu hússjóðsgjaldi.

Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, sendu fyrirspurn á s8@s8.is eða hlidarhorn@s8.is. Þú getur líka hringt í síma 4152500 og fengið allar upplýsingar frá starfsmönnum S8 ehf, bókað skoðun í Hlíðarhorni og mátað íbúðina.

Stórglæsileg og vönduð 3ja herbergja þakíbúð á útsýnishorni 5. hæðar í Hlíðarhorni. Birt stærð er 104,9 fm þar af 8,9 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, gang, eldhús með eyju og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með hágæða sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt í hæsta gæðaflokki, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mói 2.

Nánari lýsing: Í anddyri eru góðir fataskápar. Gengið er úr anddyri inn gang inn í rúmgott alrými, eldhús með eyju og stofu/borðstofu með gólfsíðum gluggum, óhindruðu útsýni og útgengi á rúmgóðar suður svalir. Taupe grá eldhúsinnrétting með mattri áferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og hágæða ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Öll eldhúsraftæki af hæsta gæðaflokki. Innbyggður ísskápur. Rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum. Svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, taupe grá innrétting með mattri áferð og speglaskápur með lýsingu. Innbyggð blöndunartæki á baði úr byssubláu stáli. Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0043. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar hafa forgang.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Bílakjallari undir Hlíðarhorni er ekki hluti af sameign og er skv. deiliskipulagi “samnýttur”. Kjallarinn verður rekinn óhagnaðardrifinn af rekstrarfélagi sem er í eigu S8 ehf. en úthlutað er föstum leigusamningum til ákveðinna íbúða til 10 ára að lágmarki. Kaupendur geta valið að gerast aðilar að rekstrarfélagi bílakjallara samfara kaupum á íbúð og geta þannig haft áhrif á rekstur kjallarans til framtíðar.

Á heimasíðu Hlíðarhorns, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu byggingaraðilla og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir innan úr auglýstri íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.

ATH: Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Iðnbúð 2
Skoða eignina Iðnbúð 2
Iðnbúð 2
210 Garðabær
43 m2
Fjölbýlishús
211
1021 þ.kr./m2
43.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarkarholt 27
Bílastæði
Skoða eignina Bjarkarholt 27
Bjarkarholt 27
270 Mosfellsbær
178.9 m2
Fjölbýlishús
311
886 þ.kr./m2
158.500.000 kr.
Skoða eignina Desjamýri 14C
Skoða eignina Desjamýri 14C
Desjamýri 14C
270 Mosfellsbær
202 m2
Atvinnuhúsn.
2
633 þ.kr./m2
127.900.000 kr.
Skoða eignina Asparlundur 5
Bílskúr
Skoða eignina Asparlundur 5
Asparlundur 5
270 Mosfellsbær
207.4 m2
Einbýlishús
544
723 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin