Fallegt nýuppgert parhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr við Úlfarsbraut 34. Eignin er einkar björt og vel skipulögð í rólegri götu við Úlfarsárdal.
Samkvæmt fasteignayfirliti frá Þjóðskrá Íslands er eignin samtals skráð 207,6 m2 en þar af er bílskúrinn 24,5 m2. * Yfirbyggðar suður svalir.
* Lokaður sólpallur með heitum potti.
* Innangengt í bílskúrEignin skiptist: Á efri hæð er gengið inn á forstofu, gestasnyrtingu með sturtu, gang, eldhús, borðstofu, stofu og bílskúr.
Á neðri hæð eru 4 svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi, þvottahús/geymslu.
Efri hæð:
Forstofa er með góðum fataskápum og flísum á gólfi.
Gestasnyrtingin er með upphengdu salerni, handlaug og sturtu með innbyggðum blöndurnartækjum. Flísar á gólfi og veggjum.
Eldhús með fallegri innréttingu frá HTH, vönduð eldhústæki, kvartssteinn er á eyju og eldhúsi.
Stofa og borðstofa er í sama rými og eldhús, bjart og rúmgott rými. Síldarbeinaparket á gólfi og með útgengi á rúmgóðar yfirbyggðar suður svalir.
Neðri hæð:Hjónaherbergi er mjög rúmgott með fataherbergi og útgengi út í garð. Síldarbeina parket á gólfi.
Þrjú fín barnaherbergi með síldarbeina parket á gólfi.
Baðherbergi er með walk in sturtu með innbyggðum blöndunartækjum, upphengdu salerni og handlaug. Flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús og geymsla er með góðri þvottahúsinnréttingu. Flísar á gólfi.
Sjónvarpsherbergi er með síldarbeina parket á gólfi.
Bílskúr er rúmgóður, með heitu- og kölduvatni og rafdrifna bílskúrshurð. Epoxy á gólfi.
Lokaður sólpallur með heitum potti sem var allt gert fyrir 2 árum síðan.
Eignin er mjög vel staðsett í Úlfarsárdal í5 mínútna göngufæri frá Dalsskóla, leiksskóla og Fram heimilisins. Stutt í fallegar gönguleiðir í nágrenninu við Úlfarsfell.Nánari upplýsingar veita:Evert Guðmundsson Lgf. í síma nr 823-3022 eða evert@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í síma nr 775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is
www.verdmat.is
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.