Fasteignaleitin
Skráð 9. apríl 2024
Deila eign
Deila

Borgabraut 15

EinbýlishúsVestfirðir/Hólmavík-510
261.3 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
43.000.000 kr.
Fermetraverð
164.562 kr./m2
Fasteignamat
35.650.000 kr.
Brunabótamat
94.700.000 kr.
Mynd af Páll Pálsson
Páll Pálsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1973
Þvottahús
Útsýni
Sérinng.
Fasteignanúmer
2128651
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Frábært fjölskylduhús á glæsilegum útsýnisstað í Hólmavík.

Vinsamlegast sendu póst á arni@palssonfasteignasala.is til þess að bóka einkaskoðun.

* Ótrúlegt útsýni út á sjó - sjön er sögu ríkari!
* 5 svefnherbergi
* Baðherbergi + gestasalerni
* Rúmgóður bílskúr með miklum möguleikum (skráður 37,1m2)
* Þak endurnýjað af fyrri eiganda 

EIGN SEM ER VERT AÐ SKOÐA!


Nánari upplýsingar veita:
Árni B. Kristjánsson B.A í lögfræði / Lgf í síma  616-2694 arni@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson lgf. í síma 775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is

www.verdmat.is 

Birt stærð samkv. Þjóðskrá Íslands er 261,3 m2 og þar af er bílskúr 37,1 m2. Fasteignamat 2024 er 35.650.000 kr.

Húsið er byggt árið 1973 og er skráð 261,3 m2. Húsið er á tveimur hæðum með innbyggðum björtum bílskúr. Gengið er inn á neðri hæð.
Komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu þaðan sem gengið er inn í forstofuherbergi (var þvottahús, er núna gestaherbergi), gestasalerni, milliherbergi/geymslu og þaðan er gengið inn í bílskúr. Þvottarými er í bílskúr og góðar geymslur inn af honum.
Úr forstofu er teppalagður stigagangur upp á efri hæð, komið er inn á gang þar sem opið er inn í stóra stofu með borðstofu, þaðan er gengið út á svalir og út í garð.
Á aðra hönd er stórt eldhús með eldhúskrók (og frábæru útsýni). Rúmgott búr inn af eldhúsi.
Á hina höndina er gengið inn á svefnherbergisgang þar sem eru fjögur svefnherbergi, tvö lítil, eitt örlítð stærra og ágætlega stórt hjónaherbergi.
Baðherbergi er við enda gangsins þar sem er bað og sturta.
Gólf á efri hæð eru með parketi en herbergi með dúk.

Fyrir utan húsið er hellulagt bílaplan sem rúmar vel 3-4 bíla og hellulögð stétt að útidyrum.
Garðurinn er stór og einfaldur í sniðum með fallegri steinahleðslu við götu.
Að ofan rennur garðurinn upp í Borgirnar fyrir ofan og er frábært að taka morgungönguna beint út í fallega náttúruna og njóta útsýnisins.

Þar sem húsið er stórt og rúmgott með 5 svefnherbergjum eru ýmsir kostir í stöðunni fyrir áhugasama kaupendur. Húsið gæti hentað stórri barnafjölskyldu sem býr á staðnum, það gæti hentað sem sumarhús fyrir eina eða fleiri fjölskyldur saman. Einnig gæti húsið hentað mjög vel í Airbnb eða sambærilega útleigu. Auðvelt væri að útbúa fleiri herbergi eða litla íbúð í bílskúr í þeim tilgangi.

Útsýnið úr húsinu er stórfenglegt út yfir Steingrímsfjörðinn og yfir að Vatnsnesinu handan Húnaflóans. Ekki er óalgengt að hvalir sjáist á firðinum með tilheyrandi gusugangi og sporðaköstum, stundum er eins og sjóði á firðinum þegar loðnu- eða makríltorfur fara um og fuglalífið er ríkulegt allt um kring.

Á Hólmavík er alla helstu þjónustu að finna, s.s. heislugæslu, apótek, krambúð, sparisjóð og pósthús. Þar eru veitingastaðirnir Café Riis og Galdur Restaurant auk þess sem er grill í kaupfélaginu og ekki má gleyma Galdur Brugghús. Mjög góð sundlaug er á staðnum og gólfvöllur steinsnar frá. Galdrasýning á Ströndum er á Hólmavík og Sauðfjársetur á Ströndum er aðeins sunnar í sveitinni. Stutt er á skíðasvæði í Selárdal þar sem frábært er að vera á gönguskíðum.
Sannkallað draumahús í fallegri náttúruparadís

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/10/202023.050.000 kr.26.700.000 kr.261.3 m2102.181 kr.
21/05/201315.850.000 kr.19.000.000 kr.261.3 m272.713 kr.
25/08/201113.100.000 kr.18.750.000 kr.261.3 m271.756 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2023

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hlíðarvegur 23
Skoða eignina Hlíðarvegur 23
Hlíðarvegur 23
415 Bolungarvík
215.2 m2
Einbýlishús
514
204 þ.kr./m2
44.000.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarvegur 24
Bílskúr
Skoða eignina Hlíðarvegur 24
Hlíðarvegur 24
400 Ísafjörður
226.2 m2
Einbýlishús
624
190 þ.kr./m2
42.900.000 kr.
Skoða eignina Bakkavegur 11
Bílskúr
Skoða eignina Bakkavegur 11
Bakkavegur 11
410 Hnífsdalur
220 m2
Einbýlishús
614
195 þ.kr./m2
42.900.000 kr.
Skoða eignina Völusteinsstræti 28
Völusteinsstræti 28
415 Bolungarvík
220 m2
Einbýlishús
624
205 þ.kr./m2
45.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache