Bogalda 7 – Byggingarréttur fyrir allt að 400 m² einbýlishús á tveimur hæðum á 582 m² leigulóð í Eyjafjarðarsveit
Um er að ræða spennandi tækifæri til að byggja eigið heimili í nýju íbúðahverfi í Eyjafjarðarsveit þar sem svigrúm er til að hanna og byggja hús eftir eigin hugmyndum og þörfum. Gert ráð fyrir um 215 íbúðum þegar hverfið verður fullbyggt.
Lóðin er 582,0 m² að stærð og er ætluð fyrir einbýlishús á tveimur hæðum, samkvæmt byggingarskilmálum E1. Þakform er frjálst og heimilað hámarksbyggingarmagn er 400 m², sem gefur væntanlegum lóðarhafa góða möguleika á að útfæra húsnæði eftir eigin þörfum og óskum, innan marka gildandi skipulagsskilmála. Gera skal ráð fyrir þremur bílastæðum innan lóðar.
Lóðarhafi annast sjálfur framkvæmdir og allan frágang innan sinnar lóðar og ber ábyrgð á að framkvæmdir séu í samræmi við samþykkt gögn og hæðartölur samkvæmt mæliblaði. Jafnframt skal lóðarhafi annast frágang lóðar meðfram opnum svæðum í þeirri hæð sem tilgreind er á mæliblöðum og bera af því allan kostnað.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.