Fasteignaleitin

Annan hring í húsnæðishringekjunni?

01 júní 2023
Mynd af Halldór Kári Sigurðarson
Halldór Kári Sigurðarson
Hagfræðingur Húsaskjóls
Húsnæðisverð hefur ekki hækkað að raunvirði undanfarna 12 mánuði. Undanfarna þrjá áratugi hefur húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu almennt hækkað um 5,1% að raunvirði á hverjum 12 mánuðum og því er óhætt að segja að markaðurinn sé nokkuð kaldur um þessar mundir. Kaupsamningum heldur áfram að fækka og hafa ekki verið færri undanfarinn níu ár, þar að auki kom fram í mánaðarskýrslu HMS í apríl að aðeins 6% seldra íbúða á höfuðborgarsvæðinu í mars voru nýjar en hlutfall nýrra íbúða hefur ekki verið svo lágt síðan árið 2013. Í því samhengi er einnig vert að nefna að gjaldþrot fyrirtækja í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð hafa ekki verið fleiri síðan árið 2011.
Heimildir: HMS og Greiningardeild Húsaskjóls (Notast er við VNV án húsnæðis til að forðast hringvísun)

Heimildir: HMS og Greiningardeild Húsaskjóls (Notast er við VNV án húsnæðis til að forðast hringvísun)

Erfiðleikar við að selja nýjar íbúðir koma ekki á óvart í ljósi mikilla vaxtahækkana en stýrivextir hafa nú hækkað um 8 prósentustig á tveimur árum og standa í 8,75%. Nafnverð húsnæðis hefur þrátt fyrir allt ofangreint sýnt mikinn viðnámsþrótt í gegnum vaxtahækkunarferlið og þekktasta „sófasérfræðingalögmál“ landsins um að húsnæðisverð geti ekki lækkað að nafnverði hefur að mestu haldið hingað til. Það hefur hins vegar leitt til þess að framboð íbúða hefur aukist til muna vegna lítillar sölu og að verðbólga hefur reynst þrálátari en ella sem hefur leitt til hærri vaxta.
Samtök iðnaðarins hafa bent á að háir vextir hafi áhrif á byggingageirann og skv. könnun sem gerð var meðal meðlima samtakanna munu aðildarfélögin hefja byggingu á mun færri íbúðum á næstu 12 mánuðum en undanfarna 12 mánuði.
Á sama tíma er að eiga sér stað fordæmalaus fólksfjölgun hér á landi en íbúum landsins fjölgaði um 11.500 manns í fyrra eða 3,1%.
Heimildir: HMS, Hagstofa Íslands og Greiningardeild Húsaskjóls

Heimildir: HMS, Hagstofa Íslands og Greiningardeild Húsaskjóls

Horft fram á við má ætla að til skamms tíma muni hátt vaxtastig halda markaðnum köldum og enn er útlit fyrir verðlækkanir, a.m.k. að raunvirði. Gífurleg fólksfjölgun setur hins vegar þrýsting á eftirspurnarhliðina og ef byggingageirinn bregst við hærri vöxtum með því að draga úr uppbyggingu er ljóst að við munum fara annan hring í húsnæðishringekjunni. Á fyrsta fjórðungi ársins fjölgaði íbúum um 3.000 manns í viðbót og í raun útlit fyrir að fólksfjölgun hér á landi sé verulega vanmetin í mannfjöldaspá Hagstofunnar. Verði mikil fólksfjölgun áfram raunin og takmörkuð íbúðauppbygging þekkjum við niðurstöðuna, en þá má vænta þó nokkurra húsnæðisverðshækkana eftir 2-3 ár.

Vinsælar eignir

Skoða eignina Suðurhvammur 4
Bílskúr
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Suðurhvammur 4
Suðurhvammur 4
220 Hafnarfjörður
267,4 m2
Einbýlishús
825
587 þ.kr./m2
157.000.000 kr.
Skoða eignina Vallengi 15
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Vallengi 15
Vallengi 15
112 Reykjavík
88,7 m2
Fjölbýlishús
312
844 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Öldugata 17
3D Sýn
Skoða eignina Öldugata 17
Öldugata 17
101 Reykjavík
132,8 m2
Fjölbýlishús
523
821 þ.kr./m2
109.000.000 kr.
Skoða eignina Ásvallagata 69
Skoða eignina Ásvallagata 69
Ásvallagata 69
101 Reykjavík
91,6 m2
Fjölbýlishús
322
813 þ.kr./m2
74.500.000 kr.
Skoða eignina Víðihvammur 1
Opið hús:05. nóv. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Víðihvammur 1
Víðihvammur 1
200 Kópavogur
58 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
311
1033 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Framnesvegur 22
Skoða eignina Framnesvegur 22
Framnesvegur 22
101 Reykjavík
90,9 m2
Raðhús
423
1055 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnarlundur 15 e
Tjarnarlundur 15 e
600 Akureyri
113,1 m2
Fjölbýlishús
413
574 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Grandavegur 40
Hleðslustöð
Skoða eignina Grandavegur 40
Grandavegur 40
107 Reykjavík
77,4 m2
Einbýlishús
211
1066 þ.kr./m2
82.500.000 kr.
Skoða eignina Síðumúli 39
Skoða eignina Síðumúli 39
Síðumúli 39
108 Reykjavík
52 m2
Fjölbýlishús
211
921 þ.kr./m2
47.900.000 kr.
Skoða eignina Sörlaskjól 94
Hleðslustöð
Opið hús:11. nóv. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Sörlaskjól 94
Sörlaskjól 94
107 Reykjavík
134,3 m2
Hæð
513
1079 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin