Fasteignaleitin

Er viðsnúningur á húsnæðismarkaði í kortunum?

05 febrúar 2024
Mynd af Halldór Kári Sigurðarson
Halldór Kári Sigurðarson
Hagfræðingur Húsaskjóls
Photo by Sveinn Birkir  Björnsson

Photo by Sveinn Birkir Björnsson

Um mitt ár 2022 hækkaði peningastefnunefnd vexti kröftuglega og þrengdi lánþegaskilyrði og óhætt er að segja að aðgerðirnar hafi slakað verulega á yfirspenntum húsnæðismarkaðnum. Árstaktur húsnæðisverðs að raunvirðir hrapaði úr 17% hækkun niður í 6% lækkun núna í haust. Undir lok síðasta árs komu hins vegar fram vísbendingar um viðsnúning og nýbirtar verðbólgutölur benda sterklega til að í janúar hafi raunverðslækkanakaflanum lokið, a.m.k. um stundar sakir. Leita þarf aftur til áranna eftir bankahrun til að finna síðasta tímabil raunverðslækkana á húsnæðismarkaði en það var aftur á móti mun dýpra og lengra líkt og sjá má að neðan.
Heimildir: HMS og Húsaskjól

Heimildir: HMS og Húsaskjól

Þrátt fyrir að Seðlabankanum hafi tekist hægja á verðhækkunum með því að draga úr vilja og getu kaupenda til skuldsetningar hefur hann minni stjórn á undirliggjandi grunnbreytum líkt og fjölgun íbúa á Íslandi. Frá því um mitt ár 2022 hefur íbúum landsins fjölgað um rúmlega 18.000 manns eða þúsund manns á mánuði! Þar að auki gæti farið svo allt að 3.700 Grindavíkurbúar verði í leit að húsnæði.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Þjóðskrá og Húsaskjól

Heimildir: Hagstofa Íslands, Þjóðskrá og Húsaskjól

Á sama tímabili hafa verið byggðar rúmlega 5.000 íbúðir sem gerir um 3,5 íbúa á hverja íbúð en ef ekki verður hægt að búa áfram Grindavík rýkur hlutfallið upp í 5,6 íbúa á íbúð. Heilt yfir er hlutfallið hér á landi í kringum 2,6 íbúa á íbúð. Fá því í júní 2022 hefur húsnæðisverð hins vegar lækkað að raunvirði en vaxtastigið hefur hingað til komið í veg fyrir að þessi undirliggjandi þrýstingur hafi áhrif á húsnæðisverð.
Breyting frá júní 2022
Fjölgun íbúa18.400
Fjölgun íbúða5.100
Þróun húsnæðisverðs5,6% hækkun
Þróun húsnæðisverðs að raunvirði3,0% lækkun
Heimildir: Hagstofa Íslands, Þjóðskrá Íslands, HMS og Húsaskjól
Annað sem heldur aftur af verðhækkunum er einfaldlega efnahagslegur raunveruleiki. Frá árinu 2019 hefur húsnæðisverð hækkað um rúmlega helming á meðan miðgildi ráðstöfunartekna hefur hækkað um tæplega fjórðung. Þá sýnir grafið að neðan glögglega að ráðstöfunartekjur heimilanna standa illa undir núverandi húsnæðisverði í sögulegu samhengi.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Þjóðskrá Íslands og Húsaskjól

Heimildir: Hagstofa Íslands, Þjóðskrá Íslands og Húsaskjól

Með þetta í huga er nýleg grein HMS um breyttan kaupendahóp mjög áhugaverð. Þar kemur fram að íbúðum í eigu lögaðila og einstaklinga sem eiga fleiri en eina íbúð hafi fjölgað um 2.000 á síðasta ári en íbúðum í eigu þessa hóps hefur ekki fjölgað jafn mikið síðan árið 2010, einmitt á síðasta raunverðslækkanatímabili. Það má því leiða líkur að því að þessi hópur telji fasteignamarkaðinn eiga eitthvað inni. Undirritaður telur að þegar stýrivextir taki að lækka gæti undirliggjandi þrýstingur vegna mikillar fólksfjölgunar og aðstæðum í Grindavík brotist út með tilheyrandi þrýstingi á verðhækkanir.
Við þær aðstæður á eftir að koma í ljós hvort það að ráðstöfunartekjur hafi ekki hækkað í takt við húsnæðisverð undafarin ár muni duga sem akkeri fyrir markaðinn.
Næsta vaxtaákvörðun er á miðvikudaginn og standa væntingar til að nefndin haldi stýrivöxtum óbreyttum um sinn.

Vinsælar eignir

Skoða eignina Suðurhvammur 4
Bílskúr
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Suðurhvammur 4
Suðurhvammur 4
220 Hafnarfjörður
267,4 m2
Einbýlishús
825
587 þ.kr./m2
157.000.000 kr.
Skoða eignina Vallengi 15
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Vallengi 15
Vallengi 15
112 Reykjavík
88,7 m2
Fjölbýlishús
312
844 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Öldugata 17
3D Sýn
Skoða eignina Öldugata 17
Öldugata 17
101 Reykjavík
132,8 m2
Fjölbýlishús
523
821 þ.kr./m2
109.000.000 kr.
Skoða eignina Ásvallagata 69
Skoða eignina Ásvallagata 69
Ásvallagata 69
101 Reykjavík
91,6 m2
Fjölbýlishús
322
813 þ.kr./m2
74.500.000 kr.
Skoða eignina Víðihvammur 1
Opið hús:05. nóv. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Víðihvammur 1
Víðihvammur 1
200 Kópavogur
58 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
311
1033 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Framnesvegur 22
Skoða eignina Framnesvegur 22
Framnesvegur 22
101 Reykjavík
90,9 m2
Raðhús
423
1055 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnarlundur 15 e
Tjarnarlundur 15 e
600 Akureyri
113,1 m2
Fjölbýlishús
413
574 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Grandavegur 40
Hleðslustöð
Skoða eignina Grandavegur 40
Grandavegur 40
107 Reykjavík
77,4 m2
Einbýlishús
211
1066 þ.kr./m2
82.500.000 kr.
Skoða eignina Síðumúli 39
Skoða eignina Síðumúli 39
Síðumúli 39
108 Reykjavík
52 m2
Fjölbýlishús
211
921 þ.kr./m2
47.900.000 kr.
Skoða eignina Sörlaskjól 94
Hleðslustöð
Opið hús:11. nóv. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Sörlaskjól 94
Sörlaskjól 94
107 Reykjavík
134,3 m2
Hæð
513
1079 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin