Fasteignaleitin

Fasteignamarkaðurinn nálgast frostmark

01 mars 2023
Mynd af Halldór Kári Sigurðarson
Halldór Kári Sigurðarson
Hagfræðingur Húsaskjóls
Photo by aestelle on Unsplash

Photo by aestelle on Unsplash

Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hefur nú lækkað að nafnvirði milli mánaða þrjá mánuði í röð en heildarlækkunin yfir tímabilið nemur þó aðeins 1,4%. Ef litið er á 4 mánaða breytingu húsnæðisverðs að raunvirði má hins vegar sjá að húsnæðisverð hefur ekki lækkað jafn mikið á 4 mánuðum síðan árið 2010 í kjölfar fjármálahrunsins.
Það er hins vegar alveg ljóst að meira þarf til svo markaðurinn nái einhverju jafnvægi. Í janúar voru undirritaðir innan við 300 kaupsamningar en færri kaupsamningar hafa ekki verið undirritaður í stökum mánuði síðan árið 2011.
Heimildir: HMS og Greiningardeild Húsaskjóls

Heimildir: HMS og Greiningardeild Húsaskjóls

Á sama tíma og lítið selst vex fjöldi þeirra fasteigna sem er til sölu ört. Núverandi fasteignaverð og vaxtastig hafa því leitt til pattstöðu á fasteignamarkaðnum.
Það sem hefur komið í veg fyrir algjört frost á fasteignamarkaðnum undanfarana mánuði er möguleiki kaupenda til að skýla sér fyrir hækkandi greiðslubyrði með því að taka löng verðtryggð lán. Í því samhengi er áhugavert að nefna að hámarkslánstími verðtryggðra íbúðalána hjá Arion banka og Landsbankanum hefur verið styttur í 25 ár með tilheyrandi hækkun á greiðslubyrði. Íslandsbanki veitir þó enn 40 ára verðtryggð íbúðalán sem og lífeyrissjóðir en kaupendur eru eðlilega hikandi við að taka slík lán þegar verðbólgan er komin í  tveggja stafa tölu.
Þegar peningastefnunefnd kynnti elleftu stýrivaxtahækkunina í röð 8. febrúar síðastliðinn kom skýrt fram að frekari vaxtahækkana væri að vænta. Nýjustu verðbólgutölur bæta enn á vanda nefndarinnar og útlit er fyrir að stíga þurfi stærri skref en síðast þegar nefndin ákvarðar stýrivexti næst þann 22. mars.
Það er því ljóst að pattstaða fasteignaverðs og vaxta mun ekki leysast með vaxtalækkunum. Í raun benda öll ljósin í mælaborði fasteignamarkaðarins til að fasteignaverð muni lækka frekar.

Vinsælar eignir

Skoða eignina Suðurhvammur 4
Bílskúr
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Suðurhvammur 4
Suðurhvammur 4
220 Hafnarfjörður
267,4 m2
Einbýlishús
825
587 þ.kr./m2
157.000.000 kr.
Skoða eignina Vallengi 15
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Vallengi 15
Vallengi 15
112 Reykjavík
88,7 m2
Fjölbýlishús
312
844 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Öldugata 17
3D Sýn
Skoða eignina Öldugata 17
Öldugata 17
101 Reykjavík
132,8 m2
Fjölbýlishús
523
821 þ.kr./m2
109.000.000 kr.
Skoða eignina Ásvallagata 69
Skoða eignina Ásvallagata 69
Ásvallagata 69
101 Reykjavík
91,6 m2
Fjölbýlishús
322
813 þ.kr./m2
74.500.000 kr.
Skoða eignina Víðihvammur 1
Opið hús:05. nóv. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Víðihvammur 1
Víðihvammur 1
200 Kópavogur
58 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
311
1033 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Framnesvegur 22
Skoða eignina Framnesvegur 22
Framnesvegur 22
101 Reykjavík
90,9 m2
Raðhús
423
1055 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnarlundur 15 e
Tjarnarlundur 15 e
600 Akureyri
113,1 m2
Fjölbýlishús
413
574 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Grandavegur 40
Hleðslustöð
Skoða eignina Grandavegur 40
Grandavegur 40
107 Reykjavík
77,4 m2
Einbýlishús
211
1066 þ.kr./m2
82.500.000 kr.
Skoða eignina Síðumúli 39
Skoða eignina Síðumúli 39
Síðumúli 39
108 Reykjavík
52 m2
Fjölbýlishús
211
921 þ.kr./m2
47.900.000 kr.
Skoða eignina Sörlaskjól 94
Hleðslustöð
Opið hús:11. nóv. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Sörlaskjól 94
Sörlaskjól 94
107 Reykjavík
134,3 m2
Hæð
513
1079 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin