Fasteignaleitin

Húsnæðismarkaðurinn á leið í kalda sturtu

08 júlí 2022
Mynd af Halldór Kári Sigurðarson
Halldór Kári Sigurðarson
Hagfræðingur Húsaskjóls
Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 3,0% í maí sem þýðir að húsnæðisverð hefur hækkað um 24% undanfarna tólf mánuði. Áhugafólk um fasteignamarkaðinn er orðið ónæmt fyrir slíkum tölum en þó er vert að nefna að árshækkunartakturinn hefur ekki verið hærri síðan 2005 að nafnvirði en þá fór hann hæst í rúmlega 40%.
Heimildir: Þjóðskrá Íslands og Greiningardeild Húsaskjóls
Síðan kaupsamningarnir á bakvið verðhækkanir í maí voru undirritaðir hefur Seðlabankinn hins vegar gripið í handbremsuna. Um miðjan júní dró fjármálastöðugleikanefnd töluvert úr aðgengi að lánsfé og 22. júní hækkaði peningastefnunefnd stýrivexti um 100 punkta og standa stýrivextir nú í 4,75%. Í fundargerð peningastefnunefndar sem birt var í vikunni kom fram að einn nefndarmanna, Gylfi Zoëga, hefði viljað hækka stýrivexti um 125 punkta og að nefndin teldi líklegt að herða þyrfti taumhald peningastefnunnar enn frekar.
Þá kom fram í fundargerð fjármálastöðugleikanefndar að vísir að eignabólu á íbúðamarkaði gæti verið til staðar. Af öllu þessu er ljóst að Seðlabankinn hefur þó nokkrar áhyggjur af stöðunni sem komin er upp og á eftir að grípa til frekari aðgerða til að kæla markaðinn. Næsta vaxtaákvörðun er 24. ágúst en of snemmt er að segja til um hversu mikið vextir verða hækkaðir þá.
Heimildir: Þjóðskrá Íslands, Seðlabanki Íslands og Greiningardeild Húsaskjóls
Áhrifin af aðgerðum Seðlabankans eru ekki komin fram en þær koma til með að snöggkæla markaðinn í haust. Í nýbirtum hagvísum Seðlabankans má þó sjá að vanskil heimila gagnvart stóru bönkunum þremur eru í sögulegu lágmarki. Það er verulega jákvætt að vera að koma af svo sterkum grunni en það er hins vegar viðbúið að vanskilahlutfallið muni hækka í haust og áfram á fyrri hluta næsta árs.
Heimildir: Þjóðskrá Íslands, Seðlabanki Íslands og Greiningardeild Húsaskjóls
Sá hópur sem kemur til með að finna hvað mest fyrir aðgerðum Seðlabankans eru fyrstu kaupendur með óverðtryggða breytilega vexti. Í nýjust fundargerð fjármálastöðugleikanefndar kom fram að greiðslubyrðarhlutfall fyrstu kaupenda hafði hækkað þó nokkuð og var að meðaltali næstum 30% á fyrsta fjórðungi. Vert er að hafa í huga að síðan þá hafa stýrivextir hækkað úr 2,75% í 4,75%.
Horft fram á við má vænta þess að eftir 2-3 mánuði muni húsnæðisverðshækkanir vera mjög takmarkaðar og undirritaður telur að raunverðslækkanir séu líklegri en ekki. Megindrifkrafturinn á bakvið væntanlega snöggkælingu markaðarins eru aðgerðir Seðlabankans en einnig má nefna aukið framboð. Nú um mundir eru um 780 íbúðir (þar með talið sérbýli) til sölu á höfuðborgarsvæðinu sem er um helmingi meira en þegar framboðið var hvað minnst í febrúar sl. Það þýðir að þrátt fyrir að aldrei hafi hærra hlutfall selst yfir ásettu verði og að meðalsölutími hafi aldrei verið styttri eru íbúðir samt að koma hraðar inn á markaðinn en þær eru að seljast. Af öllu þessu er ljóst að heitasti markaður landsins er á leiðinni í kalda sturtu.

Vinsælar eignir

Skoða eignina Suðurhvammur 4
Bílskúr
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Suðurhvammur 4
Suðurhvammur 4
220 Hafnarfjörður
267,4 m2
Einbýlishús
825
587 þ.kr./m2
157.000.000 kr.
Skoða eignina Vallengi 15
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Vallengi 15
Vallengi 15
112 Reykjavík
88,7 m2
Fjölbýlishús
312
844 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Öldugata 17
3D Sýn
Skoða eignina Öldugata 17
Öldugata 17
101 Reykjavík
132,8 m2
Fjölbýlishús
523
821 þ.kr./m2
109.000.000 kr.
Skoða eignina Ásvallagata 69
Skoða eignina Ásvallagata 69
Ásvallagata 69
101 Reykjavík
91,6 m2
Fjölbýlishús
322
813 þ.kr./m2
74.500.000 kr.
Skoða eignina Víðihvammur 1
Opið hús:05. nóv. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Víðihvammur 1
Víðihvammur 1
200 Kópavogur
58 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
311
1033 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Framnesvegur 22
Skoða eignina Framnesvegur 22
Framnesvegur 22
101 Reykjavík
90,9 m2
Raðhús
423
1055 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnarlundur 15 e
Tjarnarlundur 15 e
600 Akureyri
113,1 m2
Fjölbýlishús
413
574 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Grandavegur 40
Hleðslustöð
Skoða eignina Grandavegur 40
Grandavegur 40
107 Reykjavík
77,4 m2
Einbýlishús
211
1066 þ.kr./m2
82.500.000 kr.
Skoða eignina Síðumúli 39
Skoða eignina Síðumúli 39
Síðumúli 39
108 Reykjavík
52 m2
Fjölbýlishús
211
921 þ.kr./m2
47.900.000 kr.
Skoða eignina Sörlaskjól 94
Hleðslustöð
Opið hús:11. nóv. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Sörlaskjól 94
Sörlaskjól 94
107 Reykjavík
134,3 m2
Hæð
513
1079 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin