Fasteignaleitin

Íbúða­verð hækk­ar fjórða mán­uð­inn í röð

Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði á milli mánaða í maímánuði. Hækkun á sérbýli spilar þar stóran þátt. Það heldur þó áfram að draga úr árshækkun íbúðaverðs og hefur hún ekki mælst minni síðan í október 2020. Útlit er fyrir að ró verði yfir íbúðamarkaði næsta kastið.

21 júní 2023
Mynd af Íslandsbanki
Íslandsbanki
Greiningadeild Íslandsbanka
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,7% í maí frá mánuðinum á undan samkvæmt gögnum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) sem birtust síðdegis í gær. Á þennan mælikvarða hefur íbúðaverð hækkað undanfarna fjóra mánuði eftir verðlækkun mánuðina þar á undan. Sérbýli á höfuðborgarsvæðinu eru helsta ástæða fyrir hækkuninni í maí. Þau hækkuðu í verði um 1,9% á milli mánaða á meðan fjölbýli hækkuðu um 0,3%.
Vísitala íbúðaverðs byggir á þriggja mánaða hlaupandi meðaltali og mæling maímánaðar byggir því á þinglýstum kaupsamningum frá mars, apríl og maí. Marsmánuður virðist hafa verið ansi líflegur á íbúðamarkaði. Vísitala íbúðaverðs tók þá mikinn kipp og hækkaði um 1,5% á milli mánaða auk þess sem umsvif voru meiri þann mánuðinn en bæði mánuðina á undan og á eftir.

Sérbýli hækka mest

Verð á sérbýlum hefur hækkað nokkuð hratt undanfarna þrjá mánuði og talsvert hraðar en verð íbúða í fjölbýli. Sérbýli á höfuðborgarsvæðinu hafa hækkað um 7,0% á tímabilinu en fjölbýli um 1,9%. Í báðum tegundum húsnæðis hækkaði verðið mest í mars og því hefur dregið úr mánaðarhækkuninni síðan þá. Í næstu mælingu HMS mun marsmánuður detta út úr þriggja mánaða meðaltalinu sem mun að öllum líkindum hægja enn frekar á mánaðarhækkun vísitölu íbúðaverðs.
Þrátt fyrir hækkun á milli mánaða heldur áfram að draga úr árshækkun íbúðaverðs frá því hún var hvað mest í fyrrasumar í 25,5%. Árshækkun í maí mælist 6,1% og hefur ekki verið minni á þennan mælikvarða frá því í október 2020. Árshækkun er ívið meiri á sérbýlum og mælist 9,0% á meðan árshækkun á fjölbýlum mælist 5,6% í maímánuði.

Heilbrigðari íbúðamarkaður?

Flest bendir til þess að íbúðamarkaður sé talsvert heilbrigðari í dag en hann hefur verið síðastliðin ár. Til að mynda hefur meðalsölutími íbúða lengst talsvert. Samkvæmt gögnum frá HMS var meðalsölutími fyrir ári síðan um mánuður en mælist nú 52 dagar. Einnig eru töluvert færri íbúðir sem seljast yfir ásettu verði þessa dagana en undanfarin misseri. Þegar mest lét seldust yfir 60% íbúða yfir ásettu verði en nú er hlutfallið einungis um 13%. Þetta bendir til þess að hægt hafi talsvert á eftirspurn.
Þar að auki hefur framboð aukist mikið á undanförnum mánuðum eftir að hafa verið í sögulegu lágmarki fyrir um ári síðan. Nú eru um fjórfalt fleiri íbúðir til sölu en á sama tíma í fyrra. Hluti þessa aukna framboðs eru nýjar íbúðir, eða ríflega 30% af heildinni. Líklega mun þetta hlutfall hækka á næstu misserum þar sem nú eru í kringum 7.900 íbúðir í byggingu á landinu öllu og það sem af er ári hafa 1.400 nýjar íbúðir komið inn á markaðinn. Útlit er fyrir ríflega 3.000 nýjar íbúðir á markaðinn í ár sem vonandi verður nóg til að anna þeirri eftirspurn sem er til staðar.
Enn er eftirspurn til staðar á íbúðamarkaði þrátt fyrir hátt vaxtastig og benda nýbirtar tölur HMS til þess. Hröð fólksfjölgun er helsta ástæða eftirspurnar á markaðinum um þessar mundir. Íbúum landsins fjölgaði um 3% í fyrra sem er mesta fólksfjölgun frá upphafi mælinga og það sem af er ári hefur íbúum haldið áfram að fjölga hratt.
Í nýlegri þjóðhagsspá okkar spáum við því að íbúðaverð muni leita í jafnvægi á næstu mánuðum. Íbúðaverð mun halda áfram að hækka að nafnvirði en þó hægar en verið hefur. Við teljum að íbúðamarkaðurinn verði rólegur og helsta ástæða þess er hátt vaxtastig. Þrátt fyrir nafnverðshækkanir mun mikil verðbólga verða til þess að raunverð íbúða mun lækka smávegis í ár samkvæmt spá okkar.

Höfundur
Bergþóra Baldursdóttir - Hagfræðingur Íslandsbanka

Vinsælar eignir

Skoða eignina Hlíð 42
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Hlíð 42
Hlíð 42
276 Mosfellsbær
183.1 m2
Sumarhús
524
Fasteignamat 55.200.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Guðrúnargata 3
Eldhúsið
Skoða eignina Guðrúnargata 3
Guðrúnargata 3
105 Reykjavík
69 m2
Fjölbýlishús
211
865 þ.kr./m2
59.700.000 kr.
Skoða eignina Silfurgata 39
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Silfurgata 39
Silfurgata 39
340 Stykkishólmur
134.1 m2
Einbýlishús
412
469 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Hörðukór 5
Hleðslustöð
Opið hús:09. sept. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Hörðukór 5
Hörðukór 5
203 Kópavogur
126 m2
Fjölbýlishús
413
674 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Vefarastræti 34
Skoða eignina Vefarastræti 34
Vefarastræti 34
270 Mosfellsbær
69.1 m2
Fjölbýlishús
312
896 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 11E
Skoða eignina Jöfursbás 11E
Jöfursbás 11E
112 Reykjavík
66.2 m2
Fjölbýlishús
413
869 þ.kr./m2
57.500.000 kr.
Skoða eignina Klettaborg 64
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Klettaborg 64
Klettaborg 64
600 Akureyri
149.4 m2
Raðhús
413
702 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Njörvasund 21
Bílskúr
Skoða eignina Njörvasund 21
Njörvasund 21
104 Reykjavík
100 m2
Fjölbýlishús
312
829 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Unufell 48
Hleðslustöð
Skoða eignina Unufell 48
Unufell 48
111 Reykjavík
97 m2
Fjölbýlishús
413
669 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Flétturimi 10
Opið hús:05. sept. kl 15:30-16:00
Skoða eignina Flétturimi 10
Flétturimi 10
112 Reykjavík
85.2 m2
Fjölbýlishús
312
762 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin