Fasteignaleitin

Íbúða­verð lækk­ar ann­an mán­uð­inn í röð

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkaði í desember, annan mánuðinn í röð. Bæði sérbýli og fjölbýli lækkuðu í verði á milli mánaða. Flest gögn benda til þess að íbúðamarkaðurinn sé að kólna talsvert sem eru góðar fréttir, m.a. fyrir verðbólguhorfur.

18 janúar 2023
Mynd af Íslandsbanki
Íslandsbanki
Greiningadeild Íslandsbanka
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,7% í desembermánuði frá mánuðinum á undan samkvæmt gögnum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunnar sem birtust síðdegis í gær. Þetta er annar mánuðurinn í röð þar sem vísitalan lækkar á milli mánaða, en í nóvember lækkaði hún um 0,3%.
Fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu lækkuðu um 0,3% í verði á milli mánaða en svo mikil lækkun í fjölbýli hefur ekki mælst síðan í júní 2020. Sérbýli lækkuðu talsvert meira á milli mánaða eða um 2,1%. Á síðustu þremur mánuðum hafa sérbýli lækkað samtals um 4% í verði eftir hækkun sem nam 4,8% í september.
Dregið hefur nú úr árshækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu fimm mánuði í röð. Hækkun á árinu 2022 mælist 17,4%, en árstakturinn náði toppi í júlí þegar hækkunin mældist 25,5%. Árshækkun á fjölbýli mælist 17,8% en á íbúðum í sérbýli 16,7% í desembermánuði.

Miklar sveiflur á undanhaldi?

Sveiflur hafa einkennt íbúðamarkaðinn að undanförnu og þá sérstaklega í verði á sérbýli. Líklega má rekja það til minni veltu og færri kaupsamninga á undanförnum mánuðum. Alla jafna eru kaupsamningar á sérbýlum á höfuðborgarsvæðinu frekar fáir samanborið við fjölbýli eins og gefur að skilja, en þeir hafa verið sérstaklega fáir á undanförnum mánuðum. Síðustu 10 ár hafa hafa kaupsamningar á sérbýlum verið að meðaltali 107 talsins í hverjum mánuði. Á nýliðnu ári voru þeir hins vegar 81 að meðaltali, en tölur fyrir desembermánuð liggja ekki fyrir. Nú hefur verð á sérbýli lækkað þrjá mánuði í röð eftir töluverða hækkun í september. Gæti verið að um einhverskonar leiðréttingu sé að ræða eftir þessa hækkun í september. Fjölbýli hafa aftur á móti sveiflast mun minna í verði.

Jákvætt fyrir verðbólguhorfur

Þessar tölur um íbúðamarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu gefa góða vísbendingu um þróun reiknuðu húsaleigunnar sem Hagstofan mælir í vísitölu neysluverðs. Líkur eru á verðbólga muni hjaðna á næstu mánuðum og það frekar hratt, einkum vegna rólegri íbúðamarkaðar.
Nú hefur komist meiri ró á íbúðamarkaðinn ef marka má gögn síðustu mánaða. Það er í takti við spá okkar og er nokkuð ljóst að aðgerðir Seðlabankans, sem hækkaði vexti og herti á lánaskilyrðum, hafi haft sitt að segja í kólnun markaðarins. Einnig mælist aukið framboð nýrra eigna á markaði og útlit fyrir talsverða íbúðafjárfestingu á næstu misserum. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaðurinn muni finna sitt jafnvægi á næstu mánuðum. Það gæti þó farið svo að verðið sveiflist til milli einstakra mánaða og mögulega haldi áfram að lækka til skemmri tíma en við teljum að til meðallangs tíma muni íbúðaverð þróast í takti við annað verðlag.

Höfundur
Bergþóra Baldursdóttir - Hagfræðingur Íslandsbanka

Vinsælar eignir

Skoða eignina Suðurhvammur 4
Bílskúr
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Suðurhvammur 4
Suðurhvammur 4
220 Hafnarfjörður
267,4 m2
Einbýlishús
825
587 þ.kr./m2
157.000.000 kr.
Skoða eignina Vallengi 15
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Vallengi 15
Vallengi 15
112 Reykjavík
88,7 m2
Fjölbýlishús
312
844 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Öldugata 17
3D Sýn
Skoða eignina Öldugata 17
Öldugata 17
101 Reykjavík
132,8 m2
Fjölbýlishús
523
821 þ.kr./m2
109.000.000 kr.
Skoða eignina Ásvallagata 69
Skoða eignina Ásvallagata 69
Ásvallagata 69
101 Reykjavík
91,6 m2
Fjölbýlishús
322
813 þ.kr./m2
74.500.000 kr.
Skoða eignina Víðihvammur 1
Opið hús:05. nóv. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Víðihvammur 1
Víðihvammur 1
200 Kópavogur
58 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
311
1033 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Framnesvegur 22
Skoða eignina Framnesvegur 22
Framnesvegur 22
101 Reykjavík
90,9 m2
Raðhús
423
1055 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnarlundur 15 e
Tjarnarlundur 15 e
600 Akureyri
113,1 m2
Fjölbýlishús
413
574 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Grandavegur 40
Hleðslustöð
Skoða eignina Grandavegur 40
Grandavegur 40
107 Reykjavík
77,4 m2
Einbýlishús
211
1066 þ.kr./m2
82.500.000 kr.
Skoða eignina Síðumúli 39
Skoða eignina Síðumúli 39
Síðumúli 39
108 Reykjavík
52 m2
Fjölbýlishús
211
921 þ.kr./m2
47.900.000 kr.
Skoða eignina Sörlaskjól 94
Hleðslustöð
Opið hús:11. nóv. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Sörlaskjól 94
Sörlaskjól 94
107 Reykjavík
134,3 m2
Hæð
513
1079 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin