Fasteignaleitin

Samningar um aukið framboð á húsnæði

13 september 2022
Mynd af HMS
HMS
Húsnæðis- og Mannvirkjastofnun
Sameiginlegt átak ríkis og sveitarfélaga um stóraukið framboð íbúða á næstu árum hófst formlega í dag þegar haldinn var upphafsfundur um framkvæmd rammasamnings sem undirritaður var í júlí sl. Rammasamningurinn kveður á um að fjölga íbúðum um 20.000 á fimm árum og 35.000 á tíu árum, þar af verði 30% nýrra íbúða hagkvæmar á viðráðanlegu verði og 5% íbúða félagsleg húsnæðisúrræði.
HMS mun á næstu vikum, fyrir hönd ríkisins, vinna með sveitarfélögum við að meta núverandi húsnæðisáætlanir, greina tækifæri til frekari uppbyggingar og gera samninga um slíkar áætlanir. Samningarnir munu kveða á um fjölda íbúða, íbúðagerð og staðsetningu til að skapa fyrirsjáanleika til næstu ára. Samkvæmt húsnæðisáætlunum fyrir árið 2022 er aðeins gert ráð fyrir um 16.000 nýjum íbúðum á fimm árum. Á sama tíma verður farið yfir áskoranir sem sveitarfélögin standa frammi fyrir vegna aukinnar uppbyggingar og endurmat á íbúðaþörf.
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra„Nú verða allir að róa í sömu átt og leggja allt kapp á að tryggja aukið framboð íbúða. Jafnvægi á húsnæðismarkaði er nauðsynlegt til þess að skapa húsnæðisöryggi, hagstætt vaxtaumhverfi til lengri tíma og verja efnahag heimilanna. Rammasamningur ríkis og sveitarfélaga sem undirritaður var í sumar var mikilvægur áfangi að ná sameiginlegri sýn um það hvernig megi ná jafnvægi á húsnæðismarkaði og fyrirsjáanleika fyrir stjórnvöld og byggingaraðila um uppbyggingu. Nú er unnið markvisst að því að útfæra samninginn með sveitarfélögum, m.a. til að tryggja nægjanlega fjölda byggingarhæfra lóða, eyða flöskuhálsum í skipulagsferlum og meta hvaða fjármuni ríkið leggur til í húsnæðisstuðning og stofnframlög. Við bíðum nú eftir kostnaðarmati HMS og sveitarfélaga til að geta metið endanlegar tillögur að fjármögnun til verkefnisins úr ríkissjóði. Þetta er viss áskorun á tímum þegar gæta þarf sjónarmiða um aðhald á fjárlögum. Þó er ljóst að hússnæðisskortur hækkar fasteignaverð og vísitölu, sem aftur getur hækkað verðbólgu og hefur þannig bein áhrif á ráðstöfunartekjur fólksins í landinu. Skynsamleg fjárfesting hins opinbera í húsnæðisstuðning er því mikilvæg og tryggir aukið framboð íbúða og dregur úr þenslu á fasteignamarkaði.“

Kostnaðarmat húsnæðisstuðnings í undirbúningi

HMS og Samband íslenskra sveitarfélaga munu í október nk. skila innviðaráðherra kostnaðarmati og tillögum um það hver húsnæðisstuðningur við sveitarfélög þarf að vera til að byggja upp hagkvæmar íbúðir á viðráðanlegu verði í samræmi við markmið rammasamningsins.
Þá er starfshópur um húsnæðisstuðning að störfum með það hlutverk að endurskoða beinan húsnæðisstuðning til einstaklinga. Á grundvelli þeirrar vinnu og á grundvelli tillagna starfshóps um aðgerðir og umbætur á húsnæðismarkaði, frá maí 2022, er gert ráð  fyrir breytingum og auknum húsnæðisstuðningi ríkisins frá því sem gert er ráð fyrir í frumvarpi til fjárlaga 2023. Þar sem starfshóparnir eru enn að störfum er horft til annarrar umræðu fjárlaga í því samhengi.
Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga „Að útfæra einstaka þætti rammasamningsins er mikil en jákvæð áskorun fyrir ríki og sveitarfélög. Við erum að feta nýja slóð í þessari samvinnu og mikilvægt er að vel til takist. Rammasamningurinn hefur nú þegar skapað væntingar sem við megum ekki bregðast. Fyrir liggur tímasett aðgerðaáætlun með 24 verkefnum og aðgerðum sem við verðum að einhenda okkur í að framkvæma. Með samstilltu átaki geta ríki og sveitarfélög vonandi náð markmiðum samningsins.“

Þriðjungur íbúða verði hagkvæmar á viðráðanlegu verði eða félagsleg húsnæðisúrræði

Samkvæmt rammasamningi er gert ráð fyrir að 30% nýrra íbúða verði hagkvæmar íbúðir á viðráðanlegu verði, sem byggðar er með stofnframlögum frá ríkinu eða með hlutdeildarlánum, samtals um 6.000 íbúðir á næstu fimm árum. Að sama skapi er áætlað að 5% íbúðanna verði félagsleg húsnæðisúrræði á vegum sveitarfélaganna, eða um 1.000 íbúðir á næstu fimm árum. Með þessum aðgerðum er verið að mæta þeim hópi sem hefur átt erfitt með að komast inn á húsnæðismarkaðinn bæði fyrstu kaupendum og tekju- og eignalægri hópum.

Húsnæðisstefna og húsnæðisáætlun í byrjun næsta árs

Að lokinni þessari vinnu og þegar samningar milli HMS og sveitarfélaga um aukna uppbyggingu á hverjum stað liggja fyrir mun HMS í upphafi næsta árs leggja fram og birta heildstæða húsnæðisáætlun fyrir allt landið. Í húsnæðisáætluninni, sem verður stafræn, verður nákvæm áætlun um uppbyggingu í hverju sveitarfélagi fyrir sig og því verður hægt fylgjast með framvindu uppbyggingar nýrra íbúða á vef HMS.
Innviðaráðuneytið vinnur nú að gerð húsnæðisstefnu með aðgerðaáætlun, sem verður sú fyrsta sem gerð hefur verið í málaflokknum. Grænbók verður kynnt í haust og þingsályktunartillaga um húsnæðisstefnu kynnt í upphafi árs 2023.

Helstu áfangar

30.nóvember - Húsnæðis- og skipulagsmál færð til innviðaráðuneytisins í tengslum við ríkisstjórnarskipti í því skyni að tryggja betri samhæfingu með sveitarfélögum og aukinn stöðugleika á húsnæðismarkaði.
17.febrúar – Starfshópur um aðgerðir og umbætur á húsnæðismarkaði skipaður – Frétt
19.maí – Starfshópur um aðgerðir og umbætur á húsnæðismarkaði kynnti tillögur – Frétt
6.júlí – Starfshópar skipaðir um húsnæðisstuðning og húsaleigulög – Frétt
12.júlí – Rammasamningur ríkis og sveitarfélaga um húsnæðismál undirritað – Frétt
Lok september – Starfshópar um húsnæðisstuðning og húsaleigulög skila niðurstöðum.
Október – HMS og Samband íslenskra sveitarfélaga skila kostnaðarmati og tillögum um aukinn húsnæðisstuðning sem þarf til uppbyggingar hagkvæmra íbúða á viðráðanlegu verði í samræmi við markmið rammasamningsins.
Áramótin 2022-2023 – HMS hefur tekið saman allar húsnæðisáætlanir sveitarfélaga í eina heildstæða og stafræna húsnæðisáætlun fyrir allt landið – eftir að sveitarfélög og HMS hafa gert samninga um einstakar húsnæðisáætlanir.
Vorþing 2023 – Húsnæðisstefna stjórnvalda með aðgerðaáætlun kynnt og lögð fram á Alþingi sem þingsályktunartillaga.

Vinsælar eignir

Skoða eignina Ferjubakki 2
Opið hús:07. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Ferjubakki 2
Ferjubakki 2
109 Reykjavík
99.9 m2
Fjölbýlishús
413
700 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Kirkjuvogur 11
Bílskúr
Skoða eignina Kirkjuvogur 11
Kirkjuvogur 11
233 Reykjanesbær
172.3 m2
Einbýlishús
714
421 þ.kr./m2
72.500.000 kr.
Skoða eignina Fífumói 1
Skoða eignina Fífumói 1
Fífumói 1
260 Reykjanesbær
64.4 m2
Fjölbýlishús
312
634 þ.kr./m2
40.800.000 kr.
Skoða eignina Rökkvatjörn 2
Bílastæði
Opið hús:08. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Rökkvatjörn 2
Rökkvatjörn 2
113 Reykjavík
74.8 m2
Fjölbýlishús
312
855 þ.kr./m2
63.943.285 kr.
Skoða eignina Flúðasel 93
Skoða eignina Flúðasel 93
Flúðasel 93
109 Reykjavík
48.9 m2
Fjölbýlishús
211
583 þ.kr./m2
28.500.000 kr.
Skoða eignina Hörðukór 3 - Útsýni
Hörðukór 3 - Útsýni
203 Kópavogur
118.9 m2
Fjölbýlishús
413
756 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarstræti 45
Skoða eignina Hafnarstræti 45
Hafnarstræti 45
600 Akureyri
216.1 m2
Einbýlishús
735
153 þ.kr./m2
33.000.000 kr.
Skoða eignina Stekkjargata 63
Skoða eignina Stekkjargata 63
Stekkjargata 63
260 Reykjanesbær
135.3 m2
Raðhús
413
259 þ.kr./m2
35.000.000 kr.
Skoða eignina Bergþórugata 17
Bergþórugata 17
101 Reykjavík
20.9 m2
Fjölbýlishús
11
1220 þ.kr./m2
25.500.000 kr.
Skoða eignina Brattakinn 5
Skoða eignina Brattakinn 5
Brattakinn 5
220 Hafnarfjörður
47.6 m2
Fjölbýlishús
32
922 þ.kr./m2
43.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin