Fasteignaleitin

Seðlabankinn kippti markaðnum niður á jörðina

05 janúar 2023
Mynd af Halldór Kári Sigurðarson
Halldór Kári Sigurðarson
Hagfræðingur Húsaskjóls
Photo by Freysteinn G. Jonsson on Unsplash

Photo by Freysteinn G. Jonsson on Unsplash

Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,3% í nóvember og hefur þar með aðeins hækkað um 0,7% að nafnvirði síðan í júlí og lækkað að raunvirði.
Heimildir: HMS, Hagstofa íslands og Greiningardeild Húsaskjóls

Heimildir: HMS, Hagstofa íslands og Greiningardeild Húsaskjóls

Ef litið er á 4 mánaða breytingu húsnæðisverðs að raunvirði má sjá hve afgerandi áhrif aðgerðir Seðlabankans hafa haft á markaðinn. Á 5 mánuðum hefur takturinn farið úr 7,9% hækkun niður í 0,2% lækkun og því ljóst að markaðurinn hefur kólnað hratt.
Á sama tíma hefur kaupsamningum fækkað um fjórðung en undanfarna 5 mánuði hafa að jafnaði verið gerðir 480 kaupsamningar á mánuði á höfuðborgarsvæðinu samanborið við rúmlega 1100 þegar hæst lét í mars 2021.
Heimildir: HMS og Greiningardeild Húsaskjóls

Heimildir: HMS og Greiningardeild Húsaskjóls

Í kjölfar upplýsinga um verulegt ofmat Þjóðskrár á íbúafjölda á Íslandi greindi Hagfræðistofnun hvaða áhrif það hefði á uppsafnaða íbúðaþörf. Niðurstaðan var sú að íbúðaþörf væri ofmetin um 5.000 íbúðir og að jafnaðir þyrfti að byggja um 2.600 íbúðir á ári næstu 10 árin. Spá HMS og SI gerir hins vegar ráð fyrir að fullgerðar íbúðir frá 2022-2024 verði tæplega 3.200 á ári sem þýðir að byggðar verða um 1.700 íbúðir umfram langtímaþörf yfir spátímabilið.
Heimildir: Hagstofa Íslands, HMS, SI, Hagfræðistofnun og Greiningardeild Húsaskjóls

Heimildir: Hagstofa Íslands, HMS, SI, Hagfræðistofnun og Greiningardeild Húsaskjóls

Uppbygging umfram langtímaþörf hefur gjarnan verið rökstudd með uppsafnaðri þörf vegna þess hve lítið var byggt eftir hrun. Í því samhengi mikilvægt að átta sig á því að núverandi húsnæðisverð endurspeglar þann húsnæðisskort sem hefur ríkt. Ef framboðið fer að vinna upp þann skort ætti húsnæðisverð að lækka til að endurspegla nýjan veruleika.
Það er því útlit fyrir að undirliggjandi lykilbreytur líkt og fólksfjölgun og íbúðauppbygging muni frekar ýta undir verðlækkanir en hækkanir á næstu árum. Til skemmri tíma mun þróun húsnæðisverðs hins vegar ráðast af meira leyti af íbúðalánavöxtum, aðgengi að fjármagni og vilja kaupenda til að taka verðtryggð lán.

Vinsælar eignir

Skoða eignina Suðurhvammur 4
Bílskúr
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Suðurhvammur 4
Suðurhvammur 4
220 Hafnarfjörður
267,4 m2
Einbýlishús
825
587 þ.kr./m2
157.000.000 kr.
Skoða eignina Vallengi 15
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Vallengi 15
Vallengi 15
112 Reykjavík
88,7 m2
Fjölbýlishús
312
844 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Öldugata 17
3D Sýn
Skoða eignina Öldugata 17
Öldugata 17
101 Reykjavík
132,8 m2
Fjölbýlishús
523
821 þ.kr./m2
109.000.000 kr.
Skoða eignina Ásvallagata 69
Skoða eignina Ásvallagata 69
Ásvallagata 69
101 Reykjavík
91,6 m2
Fjölbýlishús
322
813 þ.kr./m2
74.500.000 kr.
Skoða eignina Víðihvammur 1
Opið hús:05. nóv. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Víðihvammur 1
Víðihvammur 1
200 Kópavogur
58 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
311
1033 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Framnesvegur 22
Skoða eignina Framnesvegur 22
Framnesvegur 22
101 Reykjavík
90,9 m2
Raðhús
423
1055 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnarlundur 15 e
Tjarnarlundur 15 e
600 Akureyri
113,1 m2
Fjölbýlishús
413
574 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Grandavegur 40
Hleðslustöð
Skoða eignina Grandavegur 40
Grandavegur 40
107 Reykjavík
77,4 m2
Einbýlishús
211
1066 þ.kr./m2
82.500.000 kr.
Skoða eignina Síðumúli 39
Skoða eignina Síðumúli 39
Síðumúli 39
108 Reykjavík
52 m2
Fjölbýlishús
211
921 þ.kr./m2
47.900.000 kr.
Skoða eignina Sörlaskjól 94
Hleðslustöð
Opið hús:11. nóv. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Sörlaskjól 94
Sörlaskjól 94
107 Reykjavík
134,3 m2
Hæð
513
1079 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin