Fasteignaleitin

Vextirnir sem hleyptu húsnæðisverði af stað

04 apríl 2022
Mynd af Halldór Kári Sigurðarson
Halldór Kári Sigurðarson
Hagfræðingur Húsaskjóls
Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,5% í febrúar sem er um þrefalt meiri hækkun en í meðalmánuði undanfarin 7 ár. Þessi hækkun þýðir að árshækkunartakturinn er kominn upp í 22,5%.
Heimildir: Þjóðskrá Íslands og Greiningardeild Húsaskjóls
Tvær meginskýringar á þessum óhóflega verðhækkunum hafa verið gefnar hingað til, annars vegar framboðsskortur og hins vegar sögulega lágir vextir. Undirritaður telur að lágir vextir hafi haft meira að segja.
Ef litið er á gögn Þjóðskrár yfir fjölda einstaklinga sem voru kaupendur út frá þinglýstum kaupsamningum innan höfuðborgarsvæðisins má sjá að á seinni helmingi ársins 2020 og fyrri helmingi ársins 2021 var fjöldi kaupenda tæplega 16.000 manns. Það er aukning um 5.000 manns m.v. árstímabil þar á undan eða 46% aukning. Þessi gífurlega fjölgun kaupenda átti sér stað í kjölfarið á því að stýrivextir voru lækkaðir úr 2,75% niður í 1% á þremur mánuðum og nokkrum mánuðum síðar niður í 0,75%.
Heimildir: Þjóðskrá Íslands og Greiningardeild Húsaskjóls
Áður en fjöldi kaupenda tók að vaxa í kjölfar vaxtalækkana stóð árshækkunartakur húsnæðisverðs á höfuðborgarsvæðinu aðeins í 3,8%.
Vissulega er ákveðinn uppsafnaður íbúðaskortur á markaðnum sem hefur verið til staðar lengi en sá skortur er ekki ástæðan fyrir stökkbreytingu á húsnæðisverði undanfarin tvö ár, sú breyting skýrist af sögulega lágum vöxtum. Samkvæmt verðlagsmælingum Hagstofunnar er verðbólgan núna komin upp í 6,7% og áhrif af verðlagshækkunum erlendis eiga enn eftir að koma fram að miklu leyti.
Heimildir: Þjóðskrá Íslands og Greiningardeild Húsaskjóls
Seðlabankastjóri sagði á ársfundi Seðlabankans undir lok mars að líklega verði nauðsynlegt að hækka vexti frekar svo hægt verði að hemja verðbólgu. Líklega má sleppa líklega úr þeirri fullyrðingu en það eru varla aðrir kostir í stöðunni en að hækka vexti á meðan verðbólga er í kringum 7% og útlit fyrir að hún aukist enn frekar. Frekari vaxtahækkanir munu draga töluvert úr getu kaupenda til að halda áfram í yfirboðskapphlaupinu. Þrátt fyrir að sagan um að nánast allar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu fari yfir ásettu verði sé lífseig er vert að nefna að gögnin tala öðru máli. Fleiri íbúðir fara undir ásettu verði en yfir því þó sögulega sé hlutfall þeirra sem selst yfir ásettu verði mjög hátt, eða um 45%.
Hækkandi vextir og aukið framboð mun á næstu mánuðum kæla markaðinn og sennilegt að verðhækkana toppnum sé náð í bili. Húsnæðisverð mun þó áfram hækka vegna undirliggjandi húsnæðisskorts en ekki á sama hraða og undanfarið.

Vinsælar eignir

Skoða eignina Suðurhvammur 4
Bílskúr
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Suðurhvammur 4
Suðurhvammur 4
220 Hafnarfjörður
267,4 m2
Einbýlishús
825
587 þ.kr./m2
157.000.000 kr.
Skoða eignina Vallengi 15
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Vallengi 15
Vallengi 15
112 Reykjavík
88,7 m2
Fjölbýlishús
312
844 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Öldugata 17
3D Sýn
Skoða eignina Öldugata 17
Öldugata 17
101 Reykjavík
132,8 m2
Fjölbýlishús
523
821 þ.kr./m2
109.000.000 kr.
Skoða eignina Ásvallagata 69
Skoða eignina Ásvallagata 69
Ásvallagata 69
101 Reykjavík
91,6 m2
Fjölbýlishús
322
813 þ.kr./m2
74.500.000 kr.
Skoða eignina Víðihvammur 1
Opið hús:05. nóv. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Víðihvammur 1
Víðihvammur 1
200 Kópavogur
58 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
311
1033 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Framnesvegur 22
Skoða eignina Framnesvegur 22
Framnesvegur 22
101 Reykjavík
90,9 m2
Raðhús
423
1055 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnarlundur 15 e
Tjarnarlundur 15 e
600 Akureyri
113,1 m2
Fjölbýlishús
413
574 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Grandavegur 40
Hleðslustöð
Skoða eignina Grandavegur 40
Grandavegur 40
107 Reykjavík
77,4 m2
Einbýlishús
211
1066 þ.kr./m2
82.500.000 kr.
Skoða eignina Síðumúli 39
Skoða eignina Síðumúli 39
Síðumúli 39
108 Reykjavík
52 m2
Fjölbýlishús
211
921 þ.kr./m2
47.900.000 kr.
Skoða eignina Sörlaskjól 94
Hleðslustöð
Opið hús:11. nóv. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Sörlaskjól 94
Sörlaskjól 94
107 Reykjavík
134,3 m2
Hæð
513
1079 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin