STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Um er að ræða bjarta og opna 113,4 fm 4ra til 5 herbergja íbúð á þriðju hæð í snyrtilegu fjölbýli. Geymsla og aukaherbergi í sameign eru í útlegu.
Íbúð er 93,2 fm (merkt 02-0301), geymsla er 10,4 fm (merkt 02-0009) og föndurherbergi 9,8 fm (merkt 02-0005) samtals er eignin skráð 113,4 fm skv skráningu Þjóðskrá Íslands.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.isForstofa er rúmgóð með parketi á gólfi og skápum.
Hol er með með parketi á gólfi.
Stofa er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á suðursvalir.
Eldhús er með parketflísum á gólfi, svört innrétting og flísar á milli efri og neðri skápa. Inn af eldhúsi er þvottahús og búr.
Svefnherbergin eru þrjú og eru með harðparketi á gólfum og skápar í tveimur af þrem herbergjum.
Þvottahús er inn af eldhúsi og er með stein á gólfi, hillur ásamt tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Aukaherbergi í sameign í kjallara sem er í útleigu.
Geymsla er í sameign
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.